Hnakkrifust á bak við luktar dyr Agnar Már Másson skrifar 24. júní 2026 22:53 Donald Trump og Bill Cassidy eru sagðir hafa átt í miklu orðaskaki á fundi með þingflokknum. Samsett/Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti átti í dag spennuþrunginn fund með þingflokki Repúblikanaflokksins í öldungadeild eftir að hann aflýsti skyndilega undirritunarathöfn fyrir húsnæðisfrumvarp sem bæði Demókratar og Repúblikanar stóðu að. Rifrildin snerust aftur á móti að mestu um stríðsrekstur Bandaríkjahers í Íran.
Trump hafði aflýst undirrituninni skömmu eftir að öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti ályktun í nótt þar sem honum var sagt að hætta stríðsrekstri í Íran, en sú ályktun var samþykkt með naumum meirihluta þar sem örfáir Repúblikanar kusu með tillögunni. Reuters hefur eftir nokkrum Repúblikönum sem sátu fundinn, sem haldinn var fyrir luktum dyrum, að Trump hefði átt í hávaðarifrildum við Bill Cassidy, öldungadeildarþingmann Repúblikanaflokksins, sem sagði að ríkisstjórnin þyrfti að gefa skýringar á rammasamkomulagi sem undirritað var við Írani í síðustu viku. „Bandaríska þjóðin þarf að vita meira en henni er sagt,“ sagði Cassidy við fréttamenn í dag, samkvæmt umfjöllun Reuters. „Þótt ég viti það ekki fyrir víst, þá virðist það ekki sem svo að þetta stefni í þá átt sem okkur var sagt.“ Þingmönnum Repúblikanaflokksins var einnig mikið í mun að húsnæðisfrumvarpið yrði samþykkt og höfðu margir þeirra vonast til þess að fyrirhuguð undirritun þess kynni að afla þeim fylgis kjósenda í þingkosningum í nóvember. Trump lýsti því aftur á móti yfir að hann myndi ekki undirrita frumvarpið fyrr en öldungadeildin afgreiddi ný lög sem krefjast sönnunar á ríkisborgararétti fyrir alla kjósendur, en lögin njóta ekki nægs stuðnings á þingi til að fá samþykkt. Á blaðamannafundi minntist Trump ekki á orðaskakið við Cassidy, sem tapaði sæti sínu fyrir frambjóðanda sem Trump studdi í forvali fyrr á þessu ári. Seinna gagnrýndi hann atkvæðagreiðsluna um Íran í öldungadeildinni. „Íran sér þetta og hugsar með sér: „Hvað á þetta að þýða?“ En þið vitið að þetta er þýðingarlaust, ekki satt?“ sagði Trump við fréttamenn í Hvíta húsinu. Nokkrum klukkustundum síðar fór ríkisstjórnin fram á 70 milljarða dollara frá þinginu til að standa straum af kostnaði stríðsins, sem bætist við 867 milljarða dollara fjárlög bandaríska hersins. Í dag bannaði alríkisdómari ríkisstjórn Trumps varanlega að innleiða megnið af víðtækri forsetatilskipun hans um að gjörbreyta kosningalögum í Bandaríkjunum. Dómarinn féllst á að ríkin og þingið hefðu stjórnarskrárvarið vald yfir kosningum og taldi kröfur Trumps brot á valddreifingunni.
Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira