Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 06:43 Bensínstöð N1 við Ægisíðu er á meðal þeirra sem víkur fyrir nýrri byggð sem borgaryfirvöld sóttust eftir. Nú vill nýr meirihluti semja um frekari greiðslur fyrir byggingarrétt á lóðunum. Vísir/Arnar Meirihlutinn í borgarráði samþykkti að stofna nefnd til að semja við eigendur bensínstöðvalóða um greiðslur fyrir byggingarrétt á þeim. Borgarstjóri segir að Evrópureglur um ríkisaðstoð kunni að hafa verið brotnar þegar borgin samdi upphaflega um lóðirnar.
Þrætt hefur verið um bensínstöðvalóðir sem fyrrverandi meirihluti samdi um við olíufélögin á sínum tíma. Gegn því að loka bensínstöðvum í íbúðahverfum fengu eigendur lóðanna rétt til íbúðauppbyggingar á þeim. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í borgarráði samþykkti í gær að skipa samninganefnd til þess að semja við lóðarhafa um uppbyggingu lóðanna og „endurgjald á markaðsvirði fyrir aukinn og breyttan byggingarrétt lóðanna ásamt nýjum lóðarleiguréttindum“. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, segir við Morgunblaðið í morgun að lögfræðileg rýni borgarlögmanns á samningunum við lóðahafanna bendi til þess að brotið hafi verið gegn evrópskum reglum um ríkisaðstoð og samkeppni. „Það leiddi til þess að okkur var ráðlagt að skipa sérstaka samninganefnd sem færi í það verkefni að semja við lóðarhafana upp á nýtt um eðlilegt endurgjald fyrir þau verðmæti sem þeir fengu í hendur,“ segir borgarstjóri við blaðið. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.Sýn/Lýður Í bókun meirihlutans í borgarráði í gær sagði að hann fylgdi eftir ábendingum og úrbótatillögum frá innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar. „Mikilvægt er að stuðst sé við skýrt verklag og að ákvarðanir um takmörkuð gæði samræmist reglum um samkeppni og ríkisaðstoð,“ sagði í bókuninni. Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður, verður formaður samninganefndarinnar, að því er kemur fram í tilkynningu sem borgarstjóri sendi fjölmiðlum í morgun. Óttast að olíufélögin haldi frekar áfram að reka stöðvarnar Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu að þeir legðust ekki gegn því að samninganefnd yrði skipuð til þess að tryggja fullt samræmi við ríkisaðstoðarreglur. Vöruðu þeir aftur á móti við að þó að breytt skipulag fyrir lóðrnar skapaði vissulega aukin verðmæti fyrir eigendur lóðanna yrði að taka tillit til umfangsmikils kostnaðar við jarðvegsskipti og mengunarhreinsun ásamt fjárhagslegu tapi af því að loka arðbærum rekstri bensínstöðva snemma við útreikning á endurgjaldi. „Verði kröfur borgarinnar óraunhæfar munu olíufélögin einfaldlega nýta gildandi langtímasamninga sína og halda áfram rekstri stöðvanna á óbreyttum forsendum. Nefndin verður að sýna samstarfsvilja og fylgja meðalhófi svo þetta mikilvæga húsnæðis- og umhverfismál sigli ekki í strand,“ sagði í bókun Samfylkingarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Borgarstjórn Bensín og olía Fasteignamarkaður Jarða- og lóðamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira