Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 08:06 Maðurinn hafði samband við lögreglu áður en hann flaug til Íslands í nóvember 2021 til þess að tilkynna að hann ætlaði ekki að fara eftir sóttvarnareglum. Þær gerðu ráð fyrir að farþegar sem kæmu til landsins þyrftu að skila inn bólusetningarvottorði og ganga undir svonefnt PCR-próf á flugvellinum. Vísir/Vilhelm Landsréttur staðfesti sýknu ríkisins af kröfu manns sem var ósáttur við að þurfa að sæta sóttkví í kórónuveirufaraldrinum. Sá krafðist rúmlega tveggja milljóna króna miskabóta fyrir frelsissviptingu.
Maðurinn framvísaði hvorki vottorði um bólusetningu né gekkst hann undir sýnatöku þegar hann kom til landsins frá Englandi í nóvember árið 2021. Það gerði hann þrátt fyrir að hann vissi af því að þágildandi sóttvarnarreglur gerðu ráð fyrir að hann þyrfti að sæta fjórtán daga sóttkví. Hefði hann gengist undir sýnatöku við komuna til landsins hefði hann getað verið laus úr sóttkví fimm dögum síðar með neikvæðu prófi. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í febrúar 2024 kemur fram að maðurinn hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að skila hvorki vottorði né gangast undir sýnatöku til þess að hann gæti látið reyna á lögmæti reglnanna. Lögregla sagði að hann hefð i tjáð sýnatökuaðilum á flugvellinum að hann myndi líklega ekki fara í einangrun í fjórtán daga. Sólarhring áður en maðurinn losnaði úr tveggja vikna sóttkví staðfesti sóttvarnalæknir formlega að hann ætti að sæta sóttkvínni. Maðurinn höfðaði málið til þess að krefjast bóta vegna þeirrar ákvörðunar. Réttindi skert til að vernda líf og heilsu fólks Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröfum mannsins fyrir tæplega tveimur og hálfu ári. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu í gær. Féllst Landsréttur á með ríkinu að reglugerðin sem kvað á um sóttkvína hefði haft viðhlítandi stoð í sóttvarnalögum. Við úrlausn málsins þyrfti ennfremur að hafa í huga að réttindi mannsins hefðu verið skert til verndar lífi og heilsu fólks sem nyti verndar stjórnarskrá og alþjóðlegra sáttmála sem íslensk stjórnvöld væru bundin af. Þá lægi ekki annað fyrir en að stjórnvöld hefðu byggt á viðurkenndri læknisfræðilegri þekkingu á eðli sjúkdómsins við mat á nauðsyn aðgerða. Því þyrfti að veita stjórnvöldum nokkuð svigrúm við mat á nauðsyn aðgerða í ljósi upplýsinga um stöðu sjúkdómsins á hverjum tíma. Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi héraðsdómari og forsetaframbjóðandi, var lögmaður mannsins en hann hefur höfðað fleiri dómsmál vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda í faraldrinum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dómsmál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Fleiri fréttir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Sjá meira