Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2026 14:45 John Bolton var þjóðaröryggisráðgjafi Trumps í sautján mánuði á fyrra kjörtímabili hans. Trump hefur beitt völdum sínum til þess að ná sér niður á Bolton eftir að hann náði endurkjöri sem forseti. Rannsóknin hófst aftur á móti í forsetatíð Joe Bidens. AP/Carolyn Kaster John Bolton, sem var þjóðaröryggisráðgjafi á fyrsta kjörtímabili Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, játaði fyrir dómi í dag að hann hefði farið óhönduglega með trúnaðarupplýsingar er varða þjóðaröryggi.
Frá þessu greina Reuters, sem segja Bolton hafa gert samkomulag við saksóknara sem feli í sér styttri fangelsisvist upp á fimm ár að hámarki. Mögulegt sé að hann sæti engri fangelsisvist en það fellur í hlut dómara að taka lokaákvörðun um refsingu. Fyrr hafði Bolton staðið frammi fyrir allt að tíu ára fangelsisvist fyrir hvern ákærulið, verði hann sakfelldur, sem myndi gera allt að 180 ár. Þá er haft eftir heimildarmönnum Reuters að Bolton verði gert að greiða sekt upp á 2,25 milljónir Bandaríkjadala, eða 283 milljónir króna. Bolton, sem er 77 ára, var fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Trumps en varð síðar mikill gagnrýnandi forsetans. Hann var ákærður árið 2025 fyrir að hafa geymt leynileg skjöl heima hjá sér og að deila leynilegum upplýsingum með ættingjum sínum. Rannsóknin hófst í forsetatíð Joe Bidens. Ákæran var í átján liðum og var Bolton sakaður um að hafa notað persónulegt tölvupósthólf og samskiptaforrit til að deila glósum um opinber störf sín sem þjóðaröryggisráðgjafi árin 2018 og 2019 með tveimur ættingjum sínum. Þeir ættingjar höfðu ekki heimild til að skoða ríkisleyndarmál, sem glósurnar eru sagðar hafa innihaldið. Þar að auki munu íranskir útsendarar hafa komist inn í tölvupósta hans árið 2021. Samkvæmt yfirlýsingu á vef dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna innihéldu glósurnar meðal annars leynilegar upplýsingar um mögulegar árásir Bandaríkjamanna, andstæðinga Bandaríkjanna og utanríkismál. Bolton yfirgaf Hvíta húsið með látum á fyrsta kjörtímabili Trumps og síðan þá hafa þeir tveir eldað grátt silfur saman á opinberum vettvangi. Trump hefur kallað Bolton „vondan mann“.
Donald Trump Öryggis- og varnarmál Bandaríkin Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Sjá meira