Loksins slíðrað sverðin Eiður Þór Árnason skrifar 31. október 2026 11:43 Hörður í kveðjuhófinu í gær. Vísir/Anton Brink Hörður Arnarson kvaddi samstarfsfólk sitt í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í gær en hann hefur starfað sem forstjóri fyrirtækisins í sautján ár. Hann sagði allt eiga sinn tíma en hann bindi vonir við að fá að vera áfram hluti af golfklúbbi starfsmanna. „
Þetta er áttunda kveðjuboðið mitt af því að ég er búinn að fara síðustu tvær vikur á allar starfsstöðvarnar og hitta fólkið í stöðvunum og eiga spjall við þau um hvaðan við erum að koma og hvernig hefur gengið. Það var mjög gaman að hitta fólkið, allt fólk með sterkar skoðanir sem hefur oft skammað mig kannski í sautján ár,“ sagði Hörður í kveðjuræðu sinni í gær. Í þetta skiptið hafi verið komið aðeins annað hljóð í strokkinn. „Víst var ég sammála þér, ég var bara aðeins að halda þér við efnið,“ hafði Hörður eftir samstarfsfólki sínu. Klippa: Hörður Arnarson kveður samstarfsfólkið „Þetta voru skemmtilegar umræður, oft góðar spurningar og ég fékk nokkrum sinnum spurninguna: „Hvað finnst þér standa upp úr? Hverju ertu stoltastur af á þessu tímabili?“ Það var eiginlega ekki fyrr en á miðvikudaginn í Blöndu sem ég náði að kjarna hvað ég væri stoltastur af.“ Það væri einkum sá árangur sem hafi náðst frá því að hann hóf störf. „Ég er stoltastur af því hvernig við gerðum það. Þegar maður býr til mikil verðmæti þá svakalega oft er maður að taka af einhverjum. Það verða einhverjir sárir eftir,“ bætti Hörður við. Hann hafi ekki upplifað það nú þegar hann hafi átt í samskiptum við starfsfólk, viðskiptavini, fulltrúa nærsamfélagsins við virkjanir, verktaka og stjórnmálamenn. Greint var frá því í byrjun mánaðar að Hörður ætlaði að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar en fram hefur komið að hann hafi verið ósáttur við starfshætti stjórnar ríkisfyrirtækisins. Hann sagði í gær skrýtna en góða tilfinningu fylgja starfslokunum. Hart tekist á en vitað að þetta væri sanngjarnt Hörður sagðist hafa fengið skilaboð frá forstjórum stærstu viðsemjenda Landsvirkjunar síðustu daga. Þar eru einkum um að ræða alþjóðleg stórfyrirtæki sem reka málmbræðslur og hafa þurft að endursemja um raforkukaup. Hefur þetta skilað sér í hærri greiðslum til Landsvirkjunar. „Það var hart tekist á en þeir eru mjög ánægðir. Ég fékk bæði skilaboð opinberlega og persónuleg skilaboð þar sem menn þökkuðu geysilega vel fyrir samstarfið, þökkuðu vel fyrir það hvernig við unnum saman af því þeir voru bara að borga það sama og annars staðar. Þeir vissu alveg innst inni að þetta var sanngjarnt.“ Klippa: Ari Eldjárn tók Hörð á beinið Einnig hafi fjöldi sveitarstjórnarmanna og nágrannar virkjana sett sig í samband við Hörð. „Þetta eru aðilar sem við erum oft að takast á við og vilja fá hitt og þetta og við þurfum oft að segja nei og vinna með þeim en þeir eru mjög sáttir. Líka þetta hvernig við höfum haldið raforkuverði lágu til almennings og fyrirtækja. Ég er mjög stoltur af því og mér þótti vænt um það núna þegar ég fékk ályktun aðalfundar sveitarfélaga á köldum svæðum. Það var ályktað sérstaklega að þau vildu þakka Herði Arnarsyni fyrir að hafa staðið vaktina við að tryggja sanngjarnt raforkuverð. Þetta eru þeir sem verða mest fyrir barðinu á því ef raforkuverð hækkar.“ Fréttin er í vinnslu.
Landsvirkjun Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Loksins slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Sjá meira