Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 10:32 Lionel Messi, fyrirliði heimsmeistara Argentínu, er markahæstur á HM 2026 með sex mörk. getty/Etsuo Hara Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu ættu að eiga greiða leið í undanúrslitin á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem nú stendur yfir í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó.
Riðlakeppninni á HM lauk í nótt og nú er ljóst hvaða lið eigast við í 32-liða úrslitum mótsins. Heimsmeistarar Argentínu mega vel við una en þeir virðast hafa dottið í lukkupottinn þegar kemur að andstæðingum á leiðinni að því að verja titilinn sem þeir unnu í Katar fyrir fjórum árum. Í 32-liða úrslitunum mætir Argentína Grænhöfðaeyjum sem komust upp úr riðlakeppninni á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Grænhöfðeyingar gerðu jafntefli í öllum þremur leikjum sínum í H-riðli, meðal annars gegn Evrópumeisturum Spánverja. Ef Argentína vinnur Grænhöfðaeyjar, eins og flestir búast við, bíður heimsmeistaranna leikur gegn annað hvort Ástralíu eða Egyptalandi í sextán liða úrslitum. Argentínumenn og Ástralir mættust einmitt í sextán liða úrslitum á HM 2022. Þar hafði Argentína betur, 2-1. Komist Argentína í átta liða úrslit mætir liðið þar annað hvort Sviss/Alsír eða Kólumbíu/Gana. Fari svo að Argentína komist í undanúrslit HM gæti liðið mætt þar Brasilíu eða Englandi en sjá má mögulega leið liðanna í útsláttarkeppninni á myndinni hér fyrir neðan. The Round of 32 is set. 🔐#FIFAWorldCup pic.twitter.com/viM72iNjw3— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) June 28, 2026 Keppni í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins hefst í kvöld þegar heimalið Kanada mætir Suður-Afríku í Los Angeles. Leikur Argentínu og Grænhöfðaeyja fer fram í Miami á föstudaginn. Argentína vann alla leiki sína í riðlakeppninni með markatölunni 8-1. Messi skoraði sex af þessum átta mörkum en hann er markahæstur á HM.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira