Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 06:32 Lucas Trejo með eiginkonu sinni og tveimur börnum sem hann missti öll þrjú í jarðskjálftunum í Venesúela. @lucastrejo_lt Eiginkona og börn argentínska knattspyrnumannsins Lucas Trejo hafa fundist látin í kjölfar tveggja hrikalegra jarðskjálfta í Venesúela.
Jarðskjálftar upp á 7,2 og 7,5 stig á Richters-mælikvarða urðu með stuttu millibili á miðvikudag og er talið að að minnsta kosti 1.430 manns hafi látist. Argentínski varnarmaðurinn, sem spilar með Club Sport Marítimo de La Guaira, var staddur í höfuðborginni Caracas þegar hamfarirnar dundu yfir. Skjálftarnir ollu því að íbúðarbygging í Playa Grande, hverfi í fylkinu La Guaira þar sem ung fjölskylda hans bjó, hrundi til grunna. View this post on Instagram A post shared by New York Post (@nypost) Trejo hraðaði sér strax aftur til bæjarins og tók þátt í örvæntingarfullri og stanslausri 74 klukkustunda leit í óstöðugum rústunum ásamt neyðarstarfsfólki og sjálfboðaliðum. Vonast var til að finna fólk á lífi en sú von breyttist í djúpa sorg þegar björgunarsveitir komust loks að neðri hæðum byggingarinnar og staðfestu að eiginkona hans, Yanina Maranella, og tvö ung börn þeirra, Aarón og Ainhoa, hefðu látist á hörmulegan hátt. Í sjötíu og fjórar erfiðar klukkustundir neitaði hann að hætta að grafa og hélt í þverrandi von um að heyra raddir barna sinna undir rústunum. En kraftaverkið varð aldrei. Nokkrir knattspyrnumenn úr venesúelsku deildinni tóku þátt í að hreinsa rústir og leita að fjölskyldu Trejo. Robert Garcés (Metropolitanos FC) fór þar fyrir mönnum, ásamt José Correa (Deportivo La Guaira) og Edson Tortolero (Carabobo FC): „Við erum hér til að bjarga mannslífum og standa með Lucas Trejo, sem er vinur okkar og bróðir í fótboltanum. Ætlunin er að þið getið rétt okkur hjálparhönd, hjálpað okkur á þessari erfiðu stundu,“ sagði Robert Garcés. „Við höfum aðeins eina vél, en hún er ekki nóg. Okkur vantar sjónaukakrana, þráðlaust slípirokk, gripkló og mikla mannlega hjálp. Ég vona að með þessu myndbandi munið þið hjálpa okkur,“ sagði Garcés. View this post on Instagram A post shared by People Magazine (@people)
Fótbolti Venesúela Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Sjá meira