Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 09:47 Þjóðverjinn Waldemar Anton var dæmdur hafa brotið á Orlando Gill markverði Paragvæ og Jürgen Klopp var ekki sáttur. Getty/Tom Weller/Jan Woitas Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, var mjög ósáttur með að mark var dæmt af þýska landsliðinu í tapinu á móti Paragvæ í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Paragvæ vann leikinn á endanum í vítakeppni eftir að leikurinn sjálfur endaði með 1-1 jafntefli. Þjóðverjar héldu þó að þeir hefðu skorað sigurmarkið í framlengingunni. Jonathan Tah skallaði boltann í mark Paragvæ í fyrri hluta framlengingarinnar og Þjóðverjar fögnuðu gríðarlega. Allt í einu var dómarinn kallaður á skjáinn til að skoða mögulegt brot í aðdragandanum. Dómarinn komst því að því að brotið hefði verið á Orlando Gill, markverði Paragvæ, þegar fyrirgjöfin kom fyrir markið. Gill féll í grasið eftir einvígið við þýska sóknarmanninn og var ekki búinn að ná góðu jafnvægi aftur þegar Tah skallaði boltann í markið. Klopp er auðvitað Þjóðverji og var að vinna við sjónvarpsútsendingu frá leiknum. Hann setti í reiðikasti sínu fram flugbeitta skoðun sína. „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari. Þeir skora sextíu prósent marka sinna,“ sagði Klopp. Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár en liðið skoraði mikið af mörkum sínum úr föstum leikatriðum þar sem leikmenn liðsins fjölmenntu kringum markvörð mótherjanna í markteignum. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira