Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Valur Páll Eiríksson skrifar 30. júní 2026 18:31 Fernandes er hér til hægri eftir að fall West Ham var ljóst í lok leiktíðar. Hann féll þar með annað árið í röð eftir að hafa fallið með Southampton ári fyrr. Alex Broadway/Getty Images Tottenham hefur komist að samkomulagi við Lundúnagranna liðsins í West Ham United um kaupverð á Portúgalanum Mateus Fernandes. Hann mun kosta félagið 85 milljónir punda og verður sá dýrasti í sögu Tottenham.
Sky Sports greinir frá í kvöld. Fernandes er 21 árs gamall portúgalskur sóknartengiliður sem var öflugur með West Ham á vonbrigðaleiktíð þar sem félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hafði einnig áhuga á Fernandes en var ekki reiðubúið að greiða West Ham svo hátt kaupverð fyrir kappann. Búist er við því að West Ham gangi frá kaupunum á næstu dögum. Fernandes lék áður með Sporting í heimalandinu og Southampton á Englandi á þarsíðustu leiktíð. Hann hefur aðeins spilað tvær leiktíðir í ensku úrvalsdeildinni og fallið eftir þær báðar. Hann kostaði West Ham rúmlega 40 milljónir punda fyrir ári síðan og hefur því tvöfaldast í verði á nýliðinni leiktíð. Vera má að Tottenham bæti kaupmet sitt öðru sinni takist liðinu að klófesta ítalska miðjumanninn Sandro Tonali frá Newcastle sem er fastlega orðaður við Lundúnaliðið og mun kosta í kringum 100 milljónir punda. Manchester City er aftur á móti sagt hafa blandað sér í baráttuna um Ítalann sem gæti sett strik í reikning Tottenham hvað Tonali varðar.
Tottenham Hotspur Enski boltinn West Ham United Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Sjá meira