Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Eiður Þór Árnason skrifar 6. júlí 2026 21:07 Björgunarsveitir, lögregla, Landhelgisgæslan og sjúkralið voru kölluð út. Landsbjörg Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar.
Að sögn lögreglu fór ökumaðurinn út af brú nærri Sultartangavirkjun. Um umferðaróhapp hafi verið að ræða og Vegagerðin ákveðið að loka fyrir umferð um einbreiðu brúnna. Til stendur að ná steypubílnum upp á morgun en í millitíðinni hefur Landsvirkjun gripið til aðgerða til að minnka vatnsflæði í ánni. Brúin sé nærri virkjuninni en utan þjóðvegarins og almennt sé lítil umferð yfir hana. „Þeir beina straumnum annað og þá minnkar allur straumur í ánni. Þannig að þeir telja ekki að það sé hætta á að hann fari neitt þangað til á morgun. Svo á morgun þá í rauninni tæma þeir þetta lón, loka fyrir og þá geta þeir náð í bílinn,“ segir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ökumaðurinn hafi verið ofkældur. „Hann slapp helvíti vel.“ Var uppi á steypubílnum Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir áhöfn hafa verið reiðubúna á Reykjavíkurflugvelli þegar kallið barst þar sem hún hafi verið að undirbúa sig undir annað útkall. „Þannig að hún gat brugðist hratt við og var komin á loft um tuttugu mínútur í átta og komin á staðinn um átta mínútur yfir átta. Þar var maðurinn uppi á hlið steypubílsins sem var á hliðinni úti í ánni og sigmaðurinn seig niður til hans og hann var hífður upp í þyrluna.“ Sjúkralið og lögregla hafi sömuleiðis verið kölluð út. Þyrlan hafi síðar lent á Reykjavíkurflugvelli og ökumaðurinn verið fluttur með sjúkrabíl á spítalann til skoðunar. Landsbjörg Fréttin hefur verið uppfærð.
Landhelgisgæslan Lögreglumál Landsvirkjun Samgönguslys Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira