Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 22:42 Óskar Hrafn segir tvo trúða koma saman, Donald Trump og Gianni Infantino. Getty/Vísir Sérfræðingum í HM kvöldi á RÚV er lítt skemmt yfir ákvörðun FIFA að fresta leikbanni Folarin Balogun, leikmanns bandaríska landsliðsins, fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson segir trúðasamkomu vestanhafs.
Donald Trump Bandaríkjaforseti stærði sig af því í dag að hafa fengið banni Balogun hnekkt. Hann hafi haft samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, og í kjölfarið hafi ákvörðunin verið tekin um að fresta banni bandaríska framherjans. Mál sem slíkt á sér ekki fordæmi. Infantino tók fyrir það að Trump hafi haft áhrif á ákvörðunina um bannið. Dómstólar FIFA væru sjálfstæðir og hann sjálfur hefði ekki heldur áhrif þar á. Rætt var um málið á RÚV í kvöld og þar sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR og sérfræðingur RÚV í kringum mótið, málið hreinlega vera vandræðalegt fyrir alla viðkomandi. „Þetta er bara vandræðalegt. Ég veit að það sem ég segi ýtir ekki við Infantino og að hann taki sig saman í andlitinu eða fari að haga sér eins og maður. Hann er löngu farinn yfir allt sem eðlilegt telst. Hann er löngu farinn yfir til Svarthöfða og félaga. Hann var farinn inn í myrkrið og honum verður ekki ýtt inn í ljósið út af því sem ég segi.“ „Þetta er grín og vandræðalegt. Þetta er sérstaklega vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn. Infantino er trúður og var trúður fyrir þetta hangandi með öllum og sleikjandi rassgatið á öllum ríku köllunum og áhrifamiklu mönnunum,“ segir Óskar Hrafn. „Þeir sitja náttúrulega uppi með appelsínugulan trúð og þarna koma tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt sem gerist þá. Þetta er vandræðalegt fyrir FIFA en kemur ekkert rosalega á óvart því hann er búinn að vera gera lítið úr þessu,“ segir Óskar enn fremur. Fyrrum landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen var með Óskari í setti RÚV í kvöld. Hann tók undir gagnrýnina. „Þetta er skammarlegt og tekur burt trúverðugleika hjá FIFA. Hversu mikil áhrif Trump hafði á þetta vitum við aldrei, en að þetta sé að gerast dregur þetta mót niður um þrjú til fjögur plön. „Þú getur ekki gert þetta á miðju móti, þetta þarf að liggja fyrir, þessi regla, fyrir mótið. Ef aðrir eru búnir að taka út sína refsingu þá verður bara að vera ein lína,“ segir Eiður Smári.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin FIFA Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira