Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Agnar Már Másson skrifar 7. júlí 2026 13:08 Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar, segist vita til þess að vændiskonur á Íslandi hafi þurft að þjónusta hátt í 80 menn á þremur sólarhringum. Vísir/Ívar Fannar Þeir fimmtíu vændiskaupendur sem lögregla náði á mynd við eftirlit í júní eru bara dropi í hafið, að sögn teymisstjóra Bjarkarhlíðar. Hún veit um einn þolanda vændismansals sem hefur þurft að þjónusta áttatíu kaupendur yfir 72 tíma skeið. Aðgerðir lögreglu feli í sér mikinn fælingarmátt gagnvart þeim sem hyggjast kaupa í fyrsta skipti.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í rassíu gegn vændismansali í júní og náði fimmtíu kaupendum á mynd á tveimur stöðum. Þá voru fimm handteknir. Samkvæmt upplýsingum frá Bjarkarhlíð hafa fimm af sextán þolendum í þessu máli leitað til Bjarkarhlíðar. Teymisstjóri Bjarkahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, segir að þessir fimmtíu kaupendur séu aðeins brotabrot af vændiskaupendum á Íslandi. „Þetta er bara dropi í hafið. Málið er að við erum hlutfallslega með hæstu tíðni kaupa á vændi á Íslandi og þetta eru íslenskir menn sem eru að halda þessu uppi. Ég veit um einn þolandann sem þjónustaði 80 karlmenn á þremur sólarhringum,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Hundruð vændismansalsþolenda séu flutt til Íslands á hverju ári og gerðir út hér í skamman tíma. Jenný útskýrir að fólk endi oft í mansali oft vegna fátæktar, atvinnuleysis eða skulda. Þolendur séu gjarnan blekktir með loforðum um vinnu erlendis, sem reynist svo vera vændi. Hún segir að mikil eftirspurn sé eftir vændi á Íslandi en að lögregluaðgerðir sem þessar geti haft mikinn fælingarmátt gagnvart kaupendum, einkum þeim sem ætla sér bara að prófa að kaupa vændi. Boðaðar breytingar dómsmálaráðherra um nafngreindingu vændiskaupenda muni væntanlega fela í sér enn frekari fælingarmátt. Hún vonast þó enn fremur til þess að verklag lögreglu í þessum málum verði sniðið svo að þolendum sá rakleiðis boðin hjálp frá Bjarkarhlíð enda séu þeir sá hópur sem sé hvað ólíklegastur til að leita sér hjálpar sjálf. Þegar þær eru ekki í vinnunni safnist upp skuldir. Þessar konur væru ekki hér nema út af því að það er gríðarleg eftirspurn frá mönnum, aðallega íslenskum mönnum, sem eru einmitt þessir feður og afar í samfélaginu – menn sem bara sinna fjölskyldunni og vinnu og eru jafnvel vinnufélagarnir okkar – sem fara svo á milli heimilis og vinnu og brjóta á mannréttindum viðkvæmra einstaklinga með því að kaupa vændi,“ segir Jenný Kristín hjá Bjarkarhlíð. Þetta sé engu að síður sá hópur þolenda ofbeldis sem leitar sér síst aðstoðar, yfirleitt vegna alvarleika aðstæðna og ótta við afleiðingar. Afleiðingar þess að segja frá geta verið áframhaldandi ofbeldi gegn þeim sjálfum eða nákomnum. Lögregla segir að málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og rannsóknarlögreglumaður sagði við mig í gær að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann, sem sé ódýrara en gengur og gerist. Þær hafi byrjað að koma til landsins árið 2024.
Vændi Mansal Lögreglumál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira