„Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Agnar Már Másson skrifar 7. júlí 2026 19:41 Brotahópar finna gjarnan fórnarlömbin sín í gegnum samfélagsmiðla og stefnumótaforritum og lofa þeim gulli og grænum skógum í nýju landi. Síðan eru þeir neyddir í vændi, að sögn lögreglu. Getty Lögregla segir að starfsemi vændismansals hér á landi sé að miklu leyti stýrt erlendis frá. Að undanskildu vændinu sjálfu fari starfsemin stundum öll fram í gegnum netið, en erlendir glæpahópar hafi þó útsendara hér á landi til að sinna eftirliti með þolendum vændismansals.
Lögreglan á Íslandi hefur orðið vör við aukinn fjölda kínverskra vændiskvenna, en þær eru margar taldar fórnarlömb mansals. Kínverskir glæpahópar eru sagðir standa á bak við þessa fjölgun og er hún í takt við þróun í öðrum Evrópulöndum ár. Í júní handtók lögregla fimm vændiskaupendur og náði myndskeiði af 50 kaupendum sem allir verða teknir í skýrslutöku. Aðgerðin var hluti af árlegu verkefni alþjóðlegra lögregluyfirvalda. Stefán Sveinsson, tengslafulltrúi íslensku lögreglunnar hjá Europol, segir að skipuleggjendur vændisstarfseminnar séu staddir erlendis og í raun fari öll starfsemin alfarið fram í gegnum netið, fyrir utan vændið sjálft auðvitað. „Það eru svokölluð þjónustuver eða „call centers“ sem bæði búa til auglýsingarnar og taka svo á móti bókununum,“ segir Stefán. Hann segir að vændiskonurnar stoppi því gjarnan stutt, kannski rúma viku þó allur gangur sé vissulega á því, og haldi svo til nýs lands. Klippa: Vændisiðnaði að mestu stýrt að utan Þolendur hafi því lítið að segja um það hvaða kúnnum þeir þjónusta og eigi í raun í engum samskiptum við kaupendur fyrr en þeir mæta út á tröppur hjá þeim. Afbrotahóparnir finni gjarnan fórnarlömb í gegnum netið, svo sem á stefnumótaforritum eða samfélagsmiðlum, þar sem þeim er gjarnan lofað vel launuðu, löglegu starfi og betra lífi í nýju landi. Þegar þeir komi til landsins séu þeir svo neyddir út í vændi á grundvelli þess að þeir skuldi fé. „En brotahóparnir hafa þó útsendara á sínum snærum á Íslandi sem sjá um að hafa eftirlit með konunum, aka þeim á milli svæða og staða, sækja fjármuni – þegar þeir eru komnir með mismikið fjármagn þá eru þeir sóttir – leigja húsnæði og svona,“ segir Stefán. Dómsmálaráðuneytið hefur birt drög að lagabreytingum er varða vændiskaup, þar sem afnema á sektir og í stað verði málið tekið fyrir af dómstólum þar sem menn geta átt yfir höfði sér árslanga fangelsisvist. Stefán bindur vonir um að hert refsilöggjöf auki fælingarmátt þessara brota. Þeir fimmtíu vændiskaupendur sem lögregla náði á mynd við eftirlit í júní eru bara dropi í hafið, að sögn teymisstjóra Bjarkarhlíðar. Teymisstjórinn sagðist við Vísi í dag vita um einn þolanda vændismansals sem hafi þurft að þjónusta áttatíu kaupendur yfir 72 tíma skeið.
Lögreglumál Vændi Mansal Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira