Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2026 14:18 Egyptar voru allt annað en sáttir með frammistöðu Francois Letexier og dómarateymisins í leiknum gegn Argentínumönnum í gær. getty/Tom Weller Egypska knattspyrnusambandið hefur farið þess á leit við FIFA að dómararnir sem dæmdu leikinn gegn Argentínu verði sendir heim af heimsmeistaramótinu.
Egyptaland féll úr leik í sextán liða úrslitum HM í gær eftir 3-2 tap fyrir Argentínu. Egyptar voru 0-2 yfir þegar ellefu mínútur voru til leiksloka en Argentínumenn sneru dæminu sér í vil á lokakafla leiksins og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum. Egyptar voru allt annað en ánægðir með frammistöðu Francois Letexier og dómarateymisins og létu óánægju í ljós eftir leikinn. Hossam Hassan, þjálfari egypska liðsins, sagði að mark hefði verið ranglega dæmt af sínu liði í stöðunni 0-1 og að Egyptaland hefði átt að fá vítaspyrnu í uppbótartíma, skömmu áður en Enzo Fernández skoraði sigurmark heimsmeistara Argentínu. Hassan sagði augljóst að koma hefði átt Argentínu í átta liða úrslit með öllum tiltækum ráðum og fannst sínir menn beittir óréttlæti. Egyptum er ekki runnin reiðin og egypska knattspyrnusambandið hefur nú sent inn kvörtun til FIFA vegna frammistöðu dómarateymisins. Egypska knattspyrnusambandið vill að dómgæslan í leiknum í Atlanta í gær verði rannsökuð og að Letexier og félagar hans verði sendir heim af HM. Að mati egypska knattspyrnusambandsins urðu mistök dómarateymisins til þess að liðið féll úr leik og því hafi verið mismunað af Letexier og félögum. Letexier hefur dæmt þrjá leiki á HM. Auk leiksins í gær dæmdi hann leiki Ekvadors og Fílabeinsstrandarinnar og Grænhöfðaeyja og Sádi-Arabíu í riðlakeppninni. Argentína mætir Sviss í átta liða úrslitum HM í Kansas City á laugardaginn.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM Mostafa Zico, leikmaður Egyptalands, sagði eftir tapið gegn Argentínu að það væri ljóst að mótið væri spillt. Hann sagði að dómarinn hefði ekki verið sanngjarn í ákvörðunartöku leiksins. 8. júlí 2026 09:30 Messi hágrét eftir leik Það var tilfinningarík stund þegar ljóst var að heimsmeistarar Argentínu væru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir 3-2 sigur á Egyptalandi í kvöld. Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum. 7. júlí 2026 20:17 Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía | Hvað gera strákarnir hans Zidane? Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Sjá meira
Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM Mostafa Zico, leikmaður Egyptalands, sagði eftir tapið gegn Argentínu að það væri ljóst að mótið væri spillt. Hann sagði að dómarinn hefði ekki verið sanngjarn í ákvörðunartöku leiksins. 8. júlí 2026 09:30
Messi hágrét eftir leik Það var tilfinningarík stund þegar ljóst var að heimsmeistarar Argentínu væru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir 3-2 sigur á Egyptalandi í kvöld. Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum. 7. júlí 2026 20:17