Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Sindri Sverrisson skrifar 8. júlí 2026 15:43 Ungu strákarnir okkar byrja vel í Rúmeníu. HSÍ Íslenska U20-landsliðið í handbolta karla hóf EM á flottum fimm marka sigri gegn Austurríki, 32-27, í Rúmeníu í dag.
Með sigrinum steig Ísland stórt skref í átt að milliriðlakeppninni en liðið mætir ríkjandi meisturum Spánar á morgun og svo Lettlandi á laugardaginn. Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í milliriðlakeppnina og er íslenski hópurinn til alls líklegur eftir að hafa hafnað í 4. sæti á EM U18-landsliða í Svartfjallalandi fyrir tveimur árum. Eyjamaðurinn Andri Erlingsson, sem gengur í raðir Kristianstad í Svíþjóð í sumar, varð markahæstur í íslenska liðinu í dag með átta mörk. Birgir Leó Stefánsson og Ágúst Guðmundsson komu næstir með sex mörk hvor. Harri Halldórsson og Stefán Magni Hjartarson skoruðu þrjú mörk hvor, Jens Bragi Bergþórsson og Elís Þór Aðalsteinsson tvö mörk hvor, og þeir Antoine Óskar Pantano og Jökull Blöndal Björnsson eitt mark hvor. Austurríki byrjaði leikinn mun betur og komst í 9-4, og var yfir í hálfleik, 16-15. Strákarnir okkar náðu hins vegar fljótlega forystunni í seinni hálfleiknum, komust í 20-19 þegar enn voru tuttugu mínútur eftir, og reyndust mun sterkari á lokakaflanum. Alexander Ásgrímsson varði mark Íslands með mikilli prýði og varði 12 af 39 skotum, eða 30,77% skota sem hann fékk á sig, samkvæmt tölfræði EHF.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira