Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 19:11 Jordan Henderson var þakklátur læknunum Dr. Kenneth P. Unruh, Dr. Mark J. Winston og Dr. Kirk McCullough. Jordan Henderson er kominn úr aðgerð og hefur snúið aftur í bækistöðvar landsliðsins en enski landsliðsmiðjumaðurinn handleggsbrotnaði þegar hann fagnaði sigri Englands í 16-liða úrslitum. „
Tími til að undirbúa okkur fyrir stóra leikinn á laugardag,“ er það fyrsta sem heyrist frá Henderson eftir fallið vandræðalega. Jordan Henderson sjálfur mun þó ekki geta hjálpað Englandi á vellinum í átta liða úrslitunum gegn Noregi. Meiðslin sem miðjumaðurinn hlaut eftir sigurinn á Mexíkó á Azteca-leikvanginum – þegar hann ætlaði að stökkva yfir auglýsingaskilti og datt beint á handlegginn – enduðu með því að hann þurfti á súrefnisgrímu að halda og sjúkrahúsvist. Þar með er heimsmeistaramótinu lokið fyrir þennan 36 ára gamla leikmann en Henderson verður áfram í bækistöðvum landsliðsins í Kansas City til að styðja liðsfélaga sína í gullleitinni. „Takk til alls starfsfólksins sem annaðist mig á sjúkrahúsinu í Kansas City. Sérstaklega skurðlæknanna þriggja sem framkvæmdu aðgerðina,“ skrifar Henderson í færslu á Instagram. Hann nefnir þá líka á nafn: Dr. Kenneth P. Unruh, Dr. Mark J. Winston og Dr. Kirk McCullough. Faðir Jordans, Brian, varð vitni að atvikinu í leiknum úr sjónvarpssófanum heima í Englandi. Hann varð áhyggjufullur þegar hann sá son sinn borinn burt á meðan sigurviðtal við Harry Kane stóð yfir. „Fyrst hélt ég að hann hefði bara dottið,“ sagði Brian við Daily Mail og heldur áfram: „Hann gjörsamlega mölbraut framhandlegginn. Hann verður settur í gifs og svo sjáum við hvað sérfræðingarnir segja,“ sagði Brian. Landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel staðfesti að Henderson hefði verið fluttur á sjúkrahús og bætti við: „Það dró svolítið úr gleðinni yfir kvöldinu,“ sagði Tuchel. View this post on Instagram A post shared by Jordan Henderson (@jordanhenderson)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira