Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 8. júlí 2026 18:52 Vel fór á milli Trumps og Kristrúnar. Getty Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump.
Árlegur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í dag og í gær í Ankara í Tyrklandi. Á fundinum voru aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu í brennidepli. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór mikinn á fundinum og lýsti því til að mynda yfir að vopnahléi við Íran væri lokið og að tilraunir til að ná nýjum samningi væru tilgangslausar. Þá ítrekaði hann áhuga sinn á Grænlandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi við fréttastofu að fundi loknum. „Það var ekki komið sérstaklega inn á stöðuna á Grænlandi af neinum aðila inni á fundinum. Ég auðvitað ræddi við mína kollega bæði Mette Frederiksen og fleiri Norðurlandakollega og fólk er auðvitað ekki sátt með þessar athugasemdir sem koma frá Bandaríkjaforseta. Staðreyndin er sú að þetta er auðvitað ekkert nýtt. Þetta hefur legið í loftinu í langan tíma. Það var mjög góð stemmning á sjálfum fundinum og Bandaríkjaforseti hafði sérstaklega orð á því í lok fundar hvað í rauninni var hlýtt á milli fólks,“ segir hún og ítrekar að framtíð Grænlendinga sé í þeirra höndum. Hún segir fundinn hafa gengið einstaklega vel. „Fólk er mjög meðvitað um að þrátt fyrir að það hafi verið þrýstingur kannski svolítið innanborðs í bandalaginu þegar kemur að byrðaskiptingu þá hefur það orðið til þess að Evrópa og Kanada eru farin að taka á sig meira af þessum byrðum og það er mikill hugur í fólki hvað það varðar að vinna áfram saman að mikilvægum markmiðum í varnarmálum.“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra virðist kát á milli Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, og Recep Erdogan, forseta Tyrklands.ap/Alex Brandon Þá vakti það athygli eftir að Bandaríkjaforseti tók aðeins í hönd Kristrúnar að lokinni hópmyndatöku áður en hann gekk út. „Það auðvitað gekk á ýmsu eins og gerist nú stundum þessa dagana í alþjóðapólitíkinni í aðdraganda fundarins. Ég hitti Bandaríkjaforseta bæði í gærkvöldi í veislu og svo hittums við líka hér bara svona þegar leiðtogarnir komu saman og heilsuðust og spjölluðu. Það er hlýtt á milli okkar Bandaríkjaforseta. Ég hef auðvitað hitt hann í nokkur skipti og hann er mjög meðvitaður um stöðu Íslands,“ segir hún og tekur fram að hún hafi einnig rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Viðhorfið í garð Íslands hafi verið verulega jákvætt. Meðal þess sem kom úr fundinum má nefna að aðildarríki ítrekuðu í ályktun samstöðu um 5. grein sáttmála bandalagsins um sameiginlegar varnir og þá fá Úkraínumenn leyfi til að framleiða patriot-loftvarnarflaugar. „Við þurfum líka að auka meðvitund á Íslandi um að staðan hefur breyst. Árásarstríð Rússlands í Úkraínu hefur sýnt okkur að það er árásagirni bara í næsta nágrenni og við þurfum að vera við öllu viðbúin.“ Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í morgun eftir að átök hófust á nýjan leik milli Bandaríkjanna og Íran. „Það hafa margar Evrópuþjóðir, Norðurlandaþjóðir og þar með Ísland boðist til þess að taka þátt í að hjálpa því að halda Hormússundi opnu. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli vegna þess að þetta hefur mikil áhrif á efnahag allra þessara landa. Það er margt sem er jákvætt núna á Íslandi þegar það kemur að verðbólguþróun, en vissulega setur þetta strik í reikninginn.“ Trump hefur ítrekað kallað eftir því að sambandsríki NATO leggi meira að mörkum og auki fjárframlög til varnarmála. Kristrún segir mikinn skilning vera til staðar gagnvart sérstöðu Íslands. „Við höfum staðið við öll okkar getumarkmið. Það skiptir máli að við erum að setja meira fjármagn í málaflokkinn og núna telst okkur til hátt í 1% í varnartengdum útgjöldum. Þannig að við erum alveg að leggja meira í þennan málaflokk. Þetta er stöðug vinna að halda sérstöðu okkar á lofti, að sækja svona fundi, að ræða við ráðamenn, að ýta undir sérstöðu Íslands.
NATO Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira