Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Andri Broddason skrifar 11. júlí 2026 09:02 Magnús Valur Boðvarsson vill breyta hugsunarhætti um endingartíma gervigrasvalla. Vísir Á Íslandi er veðrið ekki alltaf ákjósanlegt og þar sem fótboltatímabilið byrjar snemma er oft erfitt að halda grasvöllum í toppstandi. Þá hafa einhver félög notað gervigrasvelli sem höndlar betur íslenska frostið en þegar þeir vellir verða ónýtir geta leikmenn meiðst alvarlega.
Magnús Valur Böðvarsson hefur starfað sem vallarvörður hjá bæði Breiðablik og KR. Hann segir að verið sé að hugsa vitlaust um endingu gervigrasvallana. „Þetta snýst um notkunarstundir. Ein notkunarstund telst þegar 22 leikmenn eru á vellinum í eina klukkustund. Um leið og fjöldinn er orðinn meiri, ef þú ert með 44 leikmenn inná, þá eru það tvær notkunarstundir þó að leikmennirnir séu bara á vellinum í klukkutíma,“ segir Magnús Valur og bætir við að líftími gervigrasvalla sé mældur í notkunarstundum en ekki árum. Þegar notkunarstundir vallarins eru orðnar of margar eykst meiðslahætta leikmanna. Nú í vikunni sleit Elías Már Ómarsson, leikmaður Víkings, krossband á Víkingsvellinum sem er með gamalt gervigras. Þetta er þriðja krossbandaslitið á vellinum á innan við ári. „Keppnisvöllur má í raun bara vera með 20 klukkustunda notkun á viku. Æfingavellir miðast við 60 notkunarstundir en æfingavellir á Íslandi eru oft notaðir í 160 notkunarstundir á viku. Vellirnir eru því notaðir miklu meira en þeir ættu að vera notaðir.“ Lausnin við þessu vandamáli er samt ekki að breyta gervigrasvöllunum í grasvelli. Fótboltatímabilið byrjar áður en grasvellirnir á Íslandi eru leikhæfir en samt ættu einhver félög að vera með grasvelli. „Mér finnst að sum lið eigi að vera á gervigrasi en önnur lið eigi að vera á grasi. Lið sem eru í Evrópukeppnum þurfa að skipta oftar um gervigras. Breiðablik þurfti að skipta um fjögurra ára gamalt gervigras vegna þess að Fifa skikkaði félagið til þess. Þegar meiðslahætta er orðin mikil eins og hjá Víkingi þá er einfaldlega kominn tími til að skipta um gervigras.“
Íslenski boltinn Besta deild karla Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira