Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar 11. júlí 2026 12:01 Þar sem skemmdarverkin sem unnin voru á kirkjutröppum Grafarvogskirkju, þegar íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann, eru enn til umræðu vil ég gera það sem feðraveldið hefur kennt mér að gera svo vel; Láta þetta snúast um mig og mína hagsmuni. Því ég hef séð umræðuna vera svo oft tengda hagsmunum. Að hinsegin fánarnir séu fánar ákveðinna „hagsmunahópa“ og að sýnileiki þeirra komi einhvern veginn niður á þeim sem skilgreina sig ekki undir hinsegin regnhlífarhugtakinu. Ég hef hingað til verið að mestu leyti hvítur, gagnkynhneigður, kristinn karlmaður og sé fram á litlar breytingar á þeim vettvangi í náinni framtíð. Það þýðir að íslenskt samfélag (eða allt vestrænt samfélag eins og það leggur sig) er í raun hannað til þess að láta mér líða vel. Það er hannað til þess að ég nái sem mestum árangri, jafnvel á kostnað annarra. Samfélagið viðheldur því meðal annars með kynjabundnum launamismuni og trega til að takast á við kynbundið ofbeldi í hverri mynd sem það birtist okkur. Nú heyrist á mörgum þeirra sem haka í sömu box og ég, hvort sem það er að einhverju eða öllu leyti, að hinsegin fánarnir ættu ekki að vera jafn sýnilegir og þeir eru, að hér er um að ræða innrætingu sem hefur gengið fram yfir öll mörk, og jafnvel að þetta stuðli að útilokun og þöggun. Þar komum við inn á umræðuna um hagsmuni. Ég vil að það sé algjörlega á hreinu að það er 100% mér í hag, sem hvítur, gagnkynhneigður, kristinn karlmaður, að hinsegin fánarnir séu sýnilegir, bæði á hinum opinbera vettvangi og í einkalífinu. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir stuðla að umburðarlyndi, jafnræði og kærleika. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir tákna samstöðu gagnvart hópi sem á undir högg að sæta í samfélagslegri umræðu. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að erum kölluð af Guði til að vera farvegur réttlætis, sáttar og vonar. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir eru tákn um að fólk sem ég elska sé velkomið eins og það er og þurfi ekki að fela sig. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir geta hjálpað manneskjum að vera stolt af því sem þau eru. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir kenna börnunum mínum að hver manneskja er dýrmæt og elskuð. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að kærleikurinn er mestur. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að í heimi þar sem reynt er að ala á sundrungu og afmennskun boða þeir sameiningu og upphafningu mennskunnar. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að Jesús kenndi okkur að við eigum að elska náungann líkt og við elskum okkur sjálf. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að ég vil að samlandar mínir upplifi að þau séu velkomin og örugg. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að fjölbreytileikinn er styrkur samfélagsins. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir sýna hinsegin börnum að þau eru ekki ein eða óeðlileg. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þeir eru áminning um að fylgja Gullnu reglu Jesú, að koma fram við aðra líkt og við viljum að aðrir komi fram við okkur. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að sýnileiki hinsegin samfélagsins gerir mig ekki ósýnilegan og upphafning hinsegin samfélagsins dregur mig ekki niður. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að í samfélagi þar sem hatrið og heiftin gagnvart því sem er öðruvísi getur verið svo mikil, þurfum við tákn um að við ætlum ekki að láta hatrið sigra. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að mannréttindi eru hagsmunamál allra. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að Jesús kallaði okkur til að vera ljós í heiminum. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að í samfélagi þar sem leitast er eftir vopnum til sundrungar þörfnust við tákn sameiningar. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að ég vil búa í samfélagi sem endurspeglar það besta í manneskjunni, kærleikann. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að þegar rangfærslur um hinsegin fólk eru framsettar á netmiðlum eða ræðustól Alþingis, verður ábyrgt samfélag að tala fyrir sannleikanum. Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir, vegna þess að það er samfélagi til heilla að stuðla að þekkingu og fræðslu. Hérna hef ég á mjög eigingjarnan hátt talið upp einhverjar af þeim ástæðum hvers vegna það er hagstætt fyrir mig, hvítan, gagnkynhneigðan, kristinn karlmann, að hinsegin fánarnir séu sýnilegir. Því þegar við tölum um hagsmuni getum við ekki rifið okkar eigin hagsmuni úr samhengi þess samfélags sem við lifum í. Staðreyndin er einfaldlega sú, það sem er gott fyrir hinsegin samfélagið er gott fyrir mig. En afskaplega væri það kærkomið ef það væri hægt að upphefja umræðuna úr feðraveldissvaðinu svo að við hvítu, gagnkynhneigðu, kristnu karlarnir gætu hugað að viðkvæmari hópum samfélagsins án þess að þurfa alltaf að láta umræðuna snúast um okkur sjálfa. „Ég, Drottinn, kallaði þig í réttlæti og held í hönd þína. Ég móta þig, geri þig að sáttmála fyrir þjóðirnar og að ljósi fyrir lýðina.” Höfundur er guðfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Íslenski fáninn Mest lesið Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun