Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir og Steinunn Þórðadóttir skrifa 11. júlí 2026 14:02 Undanfarið hefur umræða um dánaraðstoð á Íslandi verið áberandi. Málefnið snertir grundvallarspurningar um sjálfræði einstaklingsins, hlutverk heilbrigðisstarfsfólks og hvernig samfélagið vill standa að umönnun fólks við lífslok. Þetta eru veigamiklar spurningar sem snerta allar manneskjur og einmitt þess vegna verður umræðan að byggjast á traustum gögnum og fara fram á vandaðan hátt. Nýlega hefur ítrekað verið vísað til könnunar sem framkvæmd var árið 2023 og dregin sú ályktun að meirihluti lækna og hjúkrunarfræðinga styðji lögleiðingu dánaraðstoðar. Sú ályktun á sér ekki traustan grundvöll. Af þeim 400 læknum sem boðið var að taka þátt í könnuninni svöruðu einungis 133 læknar, því hvort þeir væru hlynntir dánaraðstoð. Í þessum 133 lækna hópi sögðust 56% vera fylgjandi lögleiðingu dánaraðstoðar. Af þeim 400 hjúkrunarfræðingum sem boðin var þátttaka svöruðuð einungis 115 spurningunni hvort þeir væru hlynntir því að dánaraðstoð verði leyfð hér á landi. Af þeim 115 hjúkrunarfræðingum sem tóku afstöðu svöruðu 86% þeirra því þannig til að þeir væru hlynntir dánaraðstoð. Vegna lítils úrtaks og lágs svarhlutfalls ber að túlka niðurstöðurnar með varúð þar sem þær byggjast á svörum um 3% starfandi hjúkrunarfræðinga og um 8% starfandi lækna.Í könnun sem tekur á umdeildu málefni eins og dánaraðstoð, er óneitanlega til staðar hætta á skekkju í svörun þar sem þeir sem hafa sterkari skoðun á málefninu eru líklegri til að svara könnuninni. Þrátt fyrir að niðurstöður sem þessar beri að túlka af varfærni vegna lítils úrtaks, lágs svarshlutfalls og framangreindrar hættu á skekkju í svörun hefur opinberlega verið farið með þessar niðurstöður eins og staðfestingu þess að meirihluti íslenskra lækna og hjúkrunarfræðinga sé fylgjandi dánaraðstoð. Þá var könnunin framkvæmd á þeim tíma þegar hugtakið dánaraðstoð og tengd nýyrði höfðu ekki fest sig í sessi í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Það getur haft áhrif á hvernig þátttakendur túlkuðu hugtakið og er því enn ein ástæða til að fara varlega í að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunum. Bæði Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands hafa fjallað ítarlega um dánaraðstoð á sínum vettvangi á undanförnum árum. Það sem félagsfólk beggja félaga hefur endurtekið bent á er að réttur fárra má ekki leiða til þess að þrýstingur skapist á þá sem standa veikastir. Enginn ætti að þurfa að upplifa dánaraðstoð sem eðlilegan valkost vegna þess að samfélagið hefur ekki tryggt honum nægilega heilbrigðisþjónustu, líknarmeðferð eða félagslegan stuðning. Verkefni okkar er fyrst og fremst að tryggja fólki bestu mögulegu meðferð, umönnun og lífsgæði allt til hinstu stundar. Í þeirri faglegu umræðu sem átt hefur sér stað innan beggja félaga hefur ítrekað verið bent á að áður en svo afdrifaríkar breytingar eru teknar til skoðunar verði að tryggja sterkt heilbrigðiskerfi, jafnt aðgengi að öflugri líknar- og lífslokameðferð, skýr samtöl um meðferðarmarkmið og stefnumótun sem byggir á gagnreyndri þekkingu. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að læra af reynslu þeirra ríkja sem hafa lögleitt dánaraðstoð, þar sem þróunin hefur í mörgum tilvikum orðið önnur en upphafleg markmið lagasetningar gerðu ráð fyrir. Þessar áhyggjur snúa að þeim áhrifum sem lagasetning um dánaraðstoð getur haft á heilbrigðisþjónustuna, hlutverk heilbrigðisstarfsfólks og þá sem standa höllum fæti í samfélaginu. Afstaða Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélags Íslands er mótuð í miklu samráði við félagsfólk og byggir á margra ára faglegri umræðu, gagnreyndri þekkingu, klínískri reynslu og þeirri siðferðilegu ábyrgð sem felst í umönnun fólks við lífslok. Það er sá grundvöllur sem stefnumótun í jafn viðkvæmu og afdrifaríku máli verður að byggja á. Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Steinunn Þórðadóttir er formaður Læknafélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helga Rósa Másdóttir Steinunn Þórðardóttir Heilbrigðismál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar