Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Áróra L Davíðsdóttir skrifar 12. júlí 2026 09:52 Kótilettan var haldin á Selfossi um helgina. Mummi Lú Mikill erill var á seinna kvöldi Kótilettunnar sem haldin var á Selfossi í gær en þrír voru vistaðir í fangageymslu í tenglsum við hátíðarhöldin að sögn lögreglu. Kvöldið hafi þó gengið þokkalega vel miðað við mannmergð. „
Það voru náttúrulega bara eins og alltaf einhverjir pústrar og kýtingur inni á svæðinu sjálfu,“ segir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Þrír hafi gist í fangaklefa í nótt, einn fyrir ölvun, óspektir og árás á lögreglumann og tveir fyrir meiriháttar eignarspjöll á bíl. Mikill lögregluviðbúnaður og erill hafi verið á svæðinu en öll mál hafi verið leyst þokkalega vel. „Það er auðvitað alltaf eitthvað þegar fólk er að skemmta sér,“ segir Bryndís. Einn til viðbótar hafi gist í fangaklefa en það atvik hafi ekki tengst hátíðarhöldum Kótilettunnar. Brynja segir „mjög mikið“ af fölsuðum skilríkjum eða persónuskilríkjum annarra handlögð frá fólki sem var undir aldri. „Þau [skilríkin] eru gerð upptæk og við vorum með sérstakt samfélagslögguteymi sem var að vinna með Barnavernd. Þá var farið með einstaklingana og af svæðinu og hringt í foreldra.“ Ekki hafi borið á góma meiri unglingadrykkju umfram almenna ölvun á svæðinu þrátt fyrir „töluvert af fólki sem var að nota fölsuð skilríki,“ segir Bryndís. Búist sé við þungri umferð núna í dag, sér í lagi á milli tíu og tvö, og fólk verði látið blása í áfengismæli á leið sinni úr bænum. Flestir hafi gist á tjaldsvæðinu á Selfossi í nótt og leggi bráðum af stað til síns heima. „Umferðin er ekki orðin þung eins og er en fólk fer að tygja sig, það er suddi hérna þannig ég held að enginn nenni að vera lengi blautur í tjaldi.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Árborg Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira