Innlent

Ís­lendingar losa meira en Evrópu­búar í lang­flestu

Kjartan Kjartansson skrifar
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, (t.h.) og Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun kynntu samanburð á losun miðað við höfðatölu á Loftslagsdeginum 2026 í Hörpu í morgun.
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, (t.h.) og Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun kynntu samanburð á losun miðað við höfðatölu á Loftslagsdeginum 2026 í Hörpu í morgun. Gunnar Sverrisson

Þó að losun gróðurhúsalofttegunda vegna raforkuframleiðslu og húshitunar sé mun minni á Íslandi en í Evrópu eru önnur losun töluvert meiri á hvern Íslending en Evrópubúa. Losun vegna vegasamgangna er rúmlega fjörutíu prósentum hærri á Íslandi en í Evrópu miðað við höfðatölu.

Íslandi hefur ítrekað verið lýst sem leiðandi í loftslagsmálum enda sé hér nær ekkert losað af gróðurhúsalofttegundum til þess að framleiða raforku og til þess að hita upp hús.

Þannig eru aðeins um fjörutíu kíló af koltvísýringi losuð á hvern Íslending árlega borið saman við 1.400 kíló í ríkjum ESB.

Glæra frá Loftslagsdeginum 2026 sem sýnir losun á mann vegna orkuframleiðslu á Íslandi annars vegar og í Evrópusambandinu hins vegar.Umhverfis- og orkustofnun

Þær tölur segja þau ekki alla söguna. Kolefnisfótspor Íslendinga er stærra en Evrópubúa í nær öllum öðrum flokkum eins og kom fram í samanburði sem var kynntur á Loftslagsdeginum, ráðstefnu um loftslagsmál í Hörpu í morgun.

Losun frá vegasamgöngum er þannig ríflega fjörutíu prósentum meiri á mann hér á landi en í Evrópu, tvöfalt meiri vegna landbúnaðar og margfalt meiri vegna landnotkunar, fiskiskipa og málmframleiðslu.

Meiri losun á hvert dýr

Flutningar með bílum frekar en lestum og lakari almenningssamgöngukerfi voru á meðal ástæðan sem Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun og Elín Björk Jónasdóttir frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu nefndu sem ástæður þess að losun á hvern íbúa vegna vegasamgangna væri hærri á Íslandi en í Evrópu.

Íslendingar losa umtalsvert meira með akstri en íbúar meginlands Evrópu.Umhverfis- og orkustofnun

Í landbúnaði sögðu þau að framleiðsla í sauðfjár- og nautgriparækt væri ekki aðeins hærri miðað við höfðatölu á Íslandi en í Evrópu heldur væri losun á hvert dýr hærra hér en á meginlandinu.

Ríflega tvöfalt meiri losun er á mann á Íslandi en í ESB vegna landbúnaðar.Umhverfis- og orkustofnun

Hægt væri að draga úr losun frá landbúnaði með sjálfbæru eldsneyti á tæki og vélar og hnitmiðaðri áburðarnotkunar. Þá hefði orka sparast í grænmetisrækt með styrkjum til grænmetisbænda til þess að skipta ljósaperum í gróðurhúsum út fyrir LED-perur.

Í sérflokki í landnotkun og sjávarútvegi

Þekkt er að losun vegna landnotkunar er hlutfallslega há á Íslandi enda fámenn þjóð í tiltölulega víðfeðmu landi. Losun á mann vegna landnotkunar er þannig tæplega áttatíu sinnum meiri á Íslandi en í Evrópu.

Á móti kemur að binding vegna skógræktar er hátt í tvöfalt meiri á mann á Íslandi en á meginlandinu. Hluti skýringarinnar er þó að mælikvarðinn er árleg binding sem eykst á Íslandi með aukinn skógrækt. 

Evrópubúar eiga ekki roð í Íslendingar þegar kemur að losun á mann vegna landnotkunar.Umhverfis- og orkustofnun

Í Evrópu eru flestir skógar aftur á móti fyrir löng fullþroskaðir og binding þeirra helst stöðug, nema þegar skæðir gróðureldar breyta þeim í uppsprettu losunar líkt og gerst hefur ítrekað undanfarin sumur.

Ekki þarf að koma á óvart að losun vegna fiskiskipa er langtum meiri á Íslandi en í Evrópu almennt. Sjávarafurðir eru helsta útflutningsvara Íslands frá fornu fari en stór hluti Evrópuríkja er landluktur.

Súpa enn seyðið af seinagangi í flokkun sorps

Silagangur í að draga úr urðun á sorpi í samanburði við Evrópuríki skýrir hvers vegna losun á mann vegna úrgangs er rúmlega þrefalt meiri hér en ytra. 

Birgir og Elín Björk sögðu að enn væri meira urðað á Íslandi en í Evrópu. Losun frá úrgangi á sér fyrst og fremst stað vegna rotnunar lífræns efnis sem er urðað yfir lengri tíma. Ísland súpi þannig enn seyðið af fortíðinni og að hafa ekki fyrr byrjað að skilja lífrænan úrgang frá almennu sorpi.

Íslendingar héldu áfram að urða lífrænan úrgang eftir að Evrópubúar voru búnir að draga úr því. Afleiðingar þess koma enn fram í losunartölum vegna úrgangs.Umhverfis- og orkustofnun

Umsvifamikil álver í fámennu landi eru ástæða þess að losun á hvern Íslending vegna málmframleiðslu er margföld á við Evrópubúa. Losunin er þó fyrst og fremst vegna framleiðslunnar sjálfrar frekar en raforkunnar sem nýtt. 

Fyrstu skrefin í að fanga og farga koltvísýringi sem losnar frá íslenskum stóriðjuverum hafa þegar verið tekin. Carbfix, dótturfélag Orkuveitunnar, lauk rannsóknarborunum á Grundartanga til þess að kanna hvort jarðlög þar henti til þess að farga koltvísýringi í þessum mánuði. Stóriðjuver Elkem og Norðuráls á Grundartanga taka þátt í því verkefni.


Tengdar fréttir

Þokast æ fjær lofts­lags­skuld­bindingum Ís­lands

Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin.

Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum

Mannkynið hefur bæði þekkinguna og tólin til þess að kveða loftslagsvandann í kútinn en eitt stærsta verkefnið er að brjóta á bak aftur popúlískt andóf gegn aðgerðum, að mati eins af fremstu loftslagsvísindamönnum í heimi. Einangrunarhyggja og skammsýni stefni árangri í baráttunni í hættu.

Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán

Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×