„Mikil saga og mikill sársauki“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júlí 2026 15:16 Messi mun í fyrsta sinn á ævinni mæta Englandi. Samsett/Getty Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum.
Töluverð saga er milli landanna tveggja og rígurinn töluverður. Þau háðu stríð um Falklandseyjar, umráðasvæði Breta í nánd við Argentínu, árið 1982. Enn er tekist á um yfirráð yfir Eyjunum. Ekki síður er saga milli þeirra innan fótboltavallarsins. Diego Maradona skoraði tvö frægustu mörk í sögu HM í leik við Englendinga á HM 1986 þar sem Argentína sló England út í 8-liða úrslitunum. Annað skoraði hann eftir að hafa hlaupið völlinn endilangan og leikið á hálft enska liðið áður en hann renndi boltanum í netið. Hitt með hendinni, án þess að dómarinn sæi til, og hefur það mark gjarnan verið sagt skorað með hendi Guðs. Liðin spiluðu einnig frægan leik á HM 1998 þar sem David Beckham var vísað af velli fyrir brot á Diego Simeone. Gera má ráð fyrir að þeir félagar verði báðir í stúkunni á miðvikudagskvöldið en Argentína sló þar Englendinga út einnig, eftir vítaspyrnukeppni. Beckham svaraði fyrir rauða spjaldið fjórum árum fyrr þegar hann skoraði sigurmarkið af vítapunktinum í 1-0 sigri á Argentínu á HM 2002. Það var í riðlakeppninni en England fór áfram og Argentína féll úr leik. Síðan þá hafa liðin ekki mæst, að undanskildum æfingaleik sem England vann 3-2 árið 2005. Lionel Messi, stjarna argentínska liðsins, hefur því enn ekki upplifað það á sínum ferli að takast á við England. Þar til nú. „Allt sem ég hef séð og man eftir [um Argentínu gegn Englandi frá 1986] er úr myndböndum og myndum sem Argentínumenn horfa stöðugt á og endurupplifa,“ sagði Messi við ESPN Argentínu eftir sigur hans manna á Sviss í gær. „En ég held að þessi leikmannahópur sé vanur að spila fótboltaleiki óháð andstæðingum.“ „Auðvitað er sérstakt að spila gegn Englandi vegna þess að þeir eru stórveldi, og leikir gegn stórveldum eru alltaf sérstakir. Persónulega er þetta í fyrsta skipti sem ég ætla að spila gegn þeim. Ég hef spilað gegn öllum nema Englandi, svo það verður líka gaman af þeirri ástæðu,“ segir Messi og bætir við: „Og við munum upplifa það fyrir það sem það er: Undanúrslitaleik HM gegn stórveldi, frábæru liði, og við munum reyna að mæta í sem bestu formi til að keppa aftur.“ Liðsfélagi Messi José Antonio López er ekki síður spenntur. „Frá sjónarhóli vallarins er þetta leikur með mikla sögu, mikinn sársauka og margar sögur að baki,“ sagði José Manuel López eftir leikinn gegn Sviss.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Argentína England Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira