Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. júlí 2026 12:07 Halldór Þorgeirsson er formaður Loftslagsráðs. Vísir/Samsett Formaður Loftslagsráðs segir endurheimt votlendis á Íslandi ekki mega bíða lengur. Loftslagsráð boðar til þjóðarátak um endurheimt votlendis í nýrri skýrslu þar sem jafnframt kemur fram að markmið stjórnvalda hafa ekki náðst.
Loftslagsráð, sem veitir íslenskum stjórnvöldum ráð um loftslagsmál, birti í dag samantekt um gildi votlendis og mikilvægi endurheimtar þess. Framræst votlendi er stór uppspretta gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Við framræslu losna gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið sem votlendið annars varðveitir. Það er því ein mikilvægasta mótvægisaðgerð við loftslagsbreytingum sem Íslendingar geta ráðist í að endurheimta votlendi en sömuleiðis eru votlendi mikilvæg heimkynni fugla og annarra dýra. Endurheimt langt undir markmiðum Fram kemur í samantektinni að áætlanir um endurheimt sem stjórnvöld settu hafi ekki gengið sem skyldi. Árið 2026 var miðað að því að 1,9% raskaðs og ónytjaðs votlendis yrði endurheimt, og að árið 2030 yrði sú tala komin í 5,7%. Hins vegar höfðu aðeins 0,5% verið endurheimt árið 2025. „Það er ekki og seint að auka við þetta og ná meiri árangri en það má ekki bíða lengur,“ segir Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs. Jafngildi 25 hringvega af skurðum Votlendi þekur um tíu prósent af flatarmáli Íslands en var framræst í stórum stíl upp úr miðri síðustu öld, einkum til þess að bæta skilyrði til landbúnaðar. Alls voru ríflega 33 þúsund kílómetrar af skurðum grafnir á um 90 ára tímabili að því er fram kemur í samantektinni. Það jafngildir um 25 hringvegum. Umfangsmikill hluti þessa framræsta lands er ekki notaður lengur til ræktar eða beitar. Eins og segir í samantektinni er endurheimt votlendis „viðamikið og vandasamt verkefni sem krefst markvissrar samvinnu mismunandi hópa samfélagsins, þar sem ríki, sveitarfélög, einkageirinn og almenningur þurfa að róa að sama marki.“ „Ef eining næst um markmið og leiðir gæti endurheimt votlendis, og þar með endurreisn mikilvægs lífsríkis á Íslandi, verið gjöf þjóðarinnar til sín sjálfrar, líkt og átak í landgræðslu og skógrækt í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar var á sínum tíma,“ segir þar sömuleiðis.
Loftslagsmál Fuglar Dýr Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira