Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar 14. júlí 2026 12:00 Samkvæmt nýjasta mati stjórnvalda og Loftslagsráðs duga núverandi aðgerðir í loftslagsmálum ekki til að Ísland nái 41% samdrætti í losun fyrir árið 2030. Markmiðið um kolefnishlutleysi árið 2040 er því orðið erfiðara að ná nema gripið verði til frekari aðgerða. Þetta skiptir máli því Ísland er eitt fárra þróaðra ríkja þar sem losun hefur aukist frá 2005 og heildarlosun á hvern íbúa er með því mesta sem gerist. Nýlega birti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra heildstæða sundurliðun á útgjöldum ríkisins til loftslagsaðgerða á árunum 2017 til 2024. Slík heildarsamantekt hefur ekki áður legið fyrir opinberlega. Hún sýnir að ríkið hefur varið að meðaltali um 10,8 milljörðum króna á ári til loftslagsaðgerða. Af samtals 86,4 milljörðum á tímabilinu voru 71,8 milljarðar, eða 83%, í formi skattívilnana á meðan bein útgjöld námu 14,6 milljörðum. Stærstur hluti stuðnings ríkisins fólst því í skattalegum hvötum til orkuskipta, meðal annars vegna kaupa á rafbílum. Birting upplýsinganna er mikilvægt skref í átt að auknu gagnsæi og auðveldar málefnalega umræðu um loftslagsmál. Fyrir það ber að þakka. Mikilvægt að vita hvaða árangri við erum að ná Með þessum upplýsingum vitum við hvað loftslagsaðgerðirnar kostuðu. Til að ná heildstæðari umræðu um aðgerðir í loftslagsmálum þarf hins vegar að ganga skrefi lengra og fá upplýsingar um hvaða árangri þær raunverulega skiluðu. Það styttist í árið 2030 og því er tímabært að staldra við. Ef Ísland er ekki að ná skuldbindingum sínum vakna eðlilega spurningar um hvernig fjármunum er varið og hvort meira þurfi til? Góð stjórnsýsla felst ekki aðeins í því að fylgjast með útgjöldum heldur einnig í því að sýna fram á árangur þeirra. Er forgangsröðunin rétt? Hagfræðistofnun Háskóla Íslands komst árið 2022 að þeirri niðurstöðu að hagkvæmustu loftslagsaðgerðirnar væru á sviði landnotkunar, svo sem endurheimtar votlendis, landgræðslu og skógræktar. Stuðningur við kaup á rafbílum var hins vegar metinn meðal óhagkvæmustu aðgerðanna þegar kostnaður á hvert sparað tonn var borinn saman. Þetta þýðir ekki að stuðningur við rafbíla hafi verið mistök. Orkuskiptin þurfa að eiga sér stað og því hraðar, því betra. Þau draga úr innflutningi jarðefnaeldsneytis, minnka losun frá vegasamgöngum og stuðla að því að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar gagnvart Evrópusambandinu. Það breytir þó ekki þeirri spurningu hvort hægt hefði verið að ná meiri samdrætti í losun með öðrum loftslagsaðgerðum. Niðurstöðurnar kalla á endurmat á því hvernig opinberum fjármunum er forgangsraðað. Ýmis álitamál í loftslagsstefnunni Samkvæmt opinberu losunarbókhaldi er framræst votlendi langstærsti einstaki losunarþáttur Íslands þegar landnotkun (LULUCF) er talin með, eða 6,2 milljónir tonna af CO₂-ígildum á ári. Á sama tíma hefur langstærstur hluti opinbers stuðnings farið í skattalega hvata til orkuskipta í samgöngum, en vegasamgöngur losa um 0,9 milljónir tonna á ári. Þessi forgangsröðun hins opinbera vekur upp mikilvæga spurningu. Á loftslagsstefna Íslands fyrst og fremst að hámarka líkurnar á að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt samningum við Evrópusambandið, eða á hún fyrst og fremst að draga sem mest úr heildarlosun gróðurhúsalofttegunda? Í flestum tilvikum fara þessi markmið saman, en ekki alltaf. Þess vegna er mikilvægt að meta reglulega hvort fjármunum sé beint þangað sem þeir skila mestum loftslagsávinningi. Loftslagsráð segir í umsögn sinni um skýrslu verkefnastjórnar Loftslagsaðgerða 2025 að ekki sé nægilegt að telja aðgerðir eða þá fjármuni sem renna til þeirra. Meta verði raunveruleg áhrif þeirra á samdrátt í losun og bindingu kolefnis. Í skýrslu OECD Economic Surveys: Iceland 2025 er tekið í sama streng og gengið jafnvel lengra. OECD leggur jafnframt áherslu á að stjórnvöld beini fjármunum í auknum mæli að þeim aðgerðum sem skila mestum samdrætti í losun á hverja krónu. Mikilvægt að meta árangurinn Núverandi ríkisstjórn hefur tækifæri til að breyta því hvernig loftslagsmál eru metin á Íslandi. Í stað þess að umræðan snúist fyrst og fremst um hversu miklu fé er varið til loftslagsaðgerða ætti hún að snúast um hvaða árangri þær skila. Næsta skref ætti að vera að koma á árlegu, sjálfstæðu og opinberu árangursmati þar sem birtar eru skýrar upplýsingar um hvaða aðgerðir drógu mest úr losun, hvað hvert sparað tonn kostaði og hvort Ísland sé á réttri leið með að ná lögbundnum markmiðum sínum. Slíkt mat myndi gera stjórnvöldum kleift að færa fjármagn frá aðgerðum sem skila takmörkuðum árangri yfir í þær sem skila mestum loftslagsávinningi. Í Bretlandi og Danmörku gegna sjálfstæð loftslagsráð lykilhlutverki við að meta reglulega hvort stjórnvöld séu á réttri leið. Ísland ætti að feta sömu slóð. Með því yrði Loftslagsráð eflt sem aðhaldsaðili gagnvart stjórnvöldum og Alþingi fengi reglulega faglegt mat á því hvort loftslagsstefnan sé að skila þeim árangri sem henni er ætlað. Á endanum skiptir ekki mestu máli hversu miklu fé var varið til loftslagsaðgerða heldur hversu miklum samdrætti í losun og bindingu þær skiluðu. Það er sá mælikvarði sem skiptir máli. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar