Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar 15. júlí 2026 13:00 Umræða um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu er hávær þessa dagana enda mikið í húfi. Við erum að fara að greiða atkvæði um hvort við eigum að kanna hvað aukið ríkjasamband við Evrópu gæti mögulega gefið okkur, nú eða tekið frá okkur. Í gegnum árin hef ég frekar verið því andvíg ef eitthvað er að Ísland gagni í Evrópusambandið. Í aðdragandanum núna hef ég hlustað betur og viðurkenni að umræðan er á köflum furðuleg svo ekki sé meira sagt. Ég er rúmlega miðaldra, tel mig vera þokkalega vel gefna og ágætlega lesna. Þess vegna misbýður mér stundum þegar fullyrðingum er bókstaflega kastað fram órökstuddum og ógagnrýndum á köflum þegar frétta- og blaðamenn eru annars vegar. Andstæðingar halda því til dæmis fram að gangi Ísland í sambandið munum við missa fullveldi okkar. Hvaða rugl er það? Ég veit ekki betur en að nágrannar okkar Danir og Finnar ráði sínum málum með lýðræðislegum kosningum og löggjafarþingum. Löggjöf okkar er þegar að stórum hluta löguð að evrópulögum og við lifum hér enn góðu lífi! Ég hef heldur aldrei heyrt raddir þess efnis að Danir, Finnar eða Svíar vilji ganga út úr þessu sambandi og ef eitthvað er, sjá Bretar eftir að hafa farið. Það er reglulega kosið til þings í þessum löndum og tekist á um hverjir og hvernig eigi að stjórna þessum löndum; þrátt fyrir að vera í Evrópubandalaginu. Hvað yrði öðruvísi hjá okkur? Því er líka haldið fram að best sé að við ráðum okkur að fullu sjálf þegar kemur að fjármálum, gjaldmiðli og vöxtum. Ég spyr; ef við erum svona góð þegar kemur að fjármálum og stýringu vaxta, hvers vegna er verðlag hér með því hæsta og svo erfitt að eignast húsnæði að stóran hluta ævinnar ert þú að greiða þau lán jafnvel þrisvar sinnum. Íslendingum hefur ekkert gengið of vel að ráða sér sjálfum hvað þetta snertir. Bullið er orðið svo mikið og rök andstæðinga svo aum að það er meðal annars notað sem ástæða hversu dýrt er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu og fara í viðræðurnar. Ég veit ekki betur en að fyrir flestar kosningar tali frambjóðendur flestir fjálglega um að bera stór mál undir þjóðina. Það er nefnilega svo lýðræðislegt… nema þegar málefnið þóknast þeim ekki. Í raun og veru er ótímabært að sökkva umræðunni djúpt í einstaka málaflokka núna því við höfum svo litlar forsendur til að taka upplýsta ákvörðun án þess að vita meira. Og þar liggur blessaður hundurinn grafinn. Í mínum huga er ómögulegt að taka afstöðu til þess hvort Íslandi sé borgið innan sambandsins fyrr en búð er að semja. Við fáum nefnilega að segja hug okkar aftur. Að lokum smá ráðlegging til nei-ara. Leyfið okkur að sjá samning, sem þá verður eins slæmur og þið haldið fram, því þá getið þið sagt við okkur hin: „við sögðum ykkur það“! Nei, ég ætla að segja já í ágúst. Ég vil fá að vita meira. Svo kemur í ljós síðar hvort mér snúist hugur eður ei. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar