Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar 16. júlí 2026 08:30 Íslenskar íþróttir hafa leikið stórt hlutverk í sögu og sjálfsmynd okkar þjóðar. Á grunni öflugs sjálfboðaliðastarfs hafa þær skapað vettvang fyrir lýðheilsu, félagslega þátttöku og afrek á heimsmælikvarða. Fáar þjóðir hafa náð jafn miklum árangri miðað við fólksfjölda. Ef við ætlum að halda áfram á þeirri vegferð og vaxa og dafna í nafni sterkara samfélags, er nauðsynlegt að horfa bæði til framtíðar og annarra þjóða sem hafa byggt upp öflugt íþróttasamfélag. Stefnumótun; grasrót og samráð Á íþróttaþingi 2025 var afreksstefna ÍSÍ samþykkt. Hún byggir á þeirri framtíðarsýn að íslenskt afreksíþróttafólk skipi sér á bekk með þeim bestu í heiminum. Jafnframt er lögð áhersla á að styðja íþróttafólk á öllum stigum ferilsins og tengja saman afreksstarf, menntun, rannsóknir og þekkingaruppbyggingu. Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) gegnir þar lykilhlutverki sem þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir sérsambönd og afreksíþróttafólk. Á þinginu kom jafnframt fram ákall um skipulagsbreytingar og aukna samvinnu ÍSÍ og UMFÍ. Á grundvelli samþykktar þingsins hefur ÍSÍ, í samvinnu við UMFÍ, haldið fundi víða um land og rætt við grasrótina um stefnumörkun, hlutverk og áherslur íþróttahreyfingarinnar. Á fjölmörgum vinnufundum með hagaðilum úr samfélaginu hefur einnig verið rætt um grasrótarstarfið, stöðu sjálfboðaliða, afreksstarfið og hlutverk íþróttahreyfingarinnar með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Raddir unga fólksins hafa svo fengið sérstakt vægi á fundum sem hafa verið skipulagðir með fulltingi svæðisfulltrúa íþrótthreyfingarinnar samhliða fyrirlestrum um mikilvægi leikgleðinnar. Samfélag á hreyfingu; afrekið og lýðheilsan Það sem stendur upp úr stefnumótunarsamtalinu og ákalli grasrótar er að grundvallarforsenda afreksstarfs á heimsmælikvarða byggir á jöfnum tækifærum til þátttöku, félagslegri velferð barna og unglinga þar sem forvarnir og lýðheilsa eru í forgrunni. Til þess þarf fjölbreytt og aðgengilegt íþróttastarf fyrir alla, þar sem börn og ungmenni fá að njóta hreyfingar og leikgleði á eigin forsendum. Afreksstefna ÍSÍ er því ekki aðeins stefna um verðlaun. Hún er jafnframt stefna um þátttöku og lýðheilsu. Því öflugri sem grasrótin er, þeim mun fleiri börn og ungmenni stunda íþróttir, njóta hreyfingar og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl. Afrek og lýðheilsa eru því ekki andstæður heldur tvær hliðar á sama peningi. Þetta sjónarmið endurspeglast einnig í nýrri „Fit for Future“ stefnu Alþjóðaólympíunefndarinnar þar sem áhersla er lögð á heilsu, vellíðan, menntun og samfélagsleg áhrif íþrótta samhliða afrekum. Spurningin er ekki hvort við eigum að velja leikgleði eða afrek. Spurningin er hvernig við getum byggt kerfi þar sem leikgleðin verður grunnurinn að afrekunum. Hvað getum við lært af Noregi? Noregur hefur á síðustu árum byggt upp eitt árangursríkasta afrekskerfi heims. Það merkilega er að árangurinn byggir á stefnu sem leggur leikgleði og þátttöku barna til grundvallar. Börn eru hvött til að prófa margar íþróttagreinar, sérhæfa sig síðar og njóta íþróttanna á eigin forsendum. Markmiðið er að halda sem flestum í íþróttum sem lengst. Breiddin skapar toppinn. Samhliða þessu hefur Afreksmiðstöð Noregs (Olympiatoppen) byggt upp öfluga innviði í kringum afreksstarfið. Þar er fjárfest markvisst í þjálfurum, rannsóknum, íþróttavísindum, gagnagreiningu og sérfræðiaðstoð. Afreksfólk fær stuðning til að sameina nám, atvinnu og íþróttir og býr við meiri fyrirsjáanleika, faglegan og fjárhagslegan, en víða annars staðar. Niðurstaðan er afburðaárangur á heimsvísu og afreksíþróttafólk í fremstu röð. Breytingar á skipulagi og fjármögnun Þegar stefna, hlutverk og skipulag hér á Íslandi eru borin saman við norska kerfið þá erum við ekki ósvipuð grönnum okkar í hugmyndafræði en nokkuð skortir á í útfærslu, fjármögnun og skipulagi. Greiningar benda til þess að stærstu tækifærin liggi í fjölgun fagráðinna þjálfara, aukinni fjárfestingu í afreksvísindum, öflugri þjónustu Afreksmiðstöðvar Íslands og markvissum stuðningi við íþróttafólk á aldrinum 18–25 ára. Þetta er sá aldur þar sem margir hætta vegna náms, atvinnu eða fjárhagslegs álags. Til að færa íslenskt afrekskerfi nær því sem þekkist til að mynda í Noregi þurfum við að fjárfesta í uppbyggingu íþróttastarfsins. Það þarf aukið fjármagn til að „jafna leikinn“, breytt skipulag og fjárfestingu í faglegum þáttum; sérfræðiþjónustu, rannsóknum, gagnaöflun, gagnaframsetningu og langtímasamningum, sem skapa fyrirsjáanleika. Á sama tíma þarf að styrkja grunnstoðir hreyfingarinnar. Sjálfboðaliðar eru meðal mikilvægustu auðlinda íslenskra íþrótta. Tugþúsundir einstaklinga leggja fram vinnu sína án endurgjalds og skapa samfélagsleg verðmæti sem nema milljörðum króna árlega. Til að tryggja sjálfbærni þarf að bæta starfsumhverfi þeirra, efla fræðslu og stuðning og auka viðurkenningu á framlagi þeirra. Sterk íþróttahreyfing = sterkara samfélag Lærdómurinn frá Noregi er ekki sá að Ísland eigi að afrita norska kerfið. Lærdómurinn er að byggja áfram á íslensku leiðinni, en styrkja hana með markvissari fjárfestingu, meiri fagmennsku og skýrari langtímahugsun. Við þurfum að ala á leikgleðinni, auka þátttökuna og skapa um leið enn betra umhverfi fyrir þau sem stefna að alþjóðlegum afrekum. Þegar öflug grasrót, sterkt sjálfboðastarf, fagleg þjálfun og markviss afreksuppbygging vinna saman verður niðurstaðan meiri en íþróttaárangur einn og sér. Þá fáum við heilbrigðari þjóð, sterkari samfélög, betri fyrirmyndir og aukin lífsgæði. Sterk íþróttahreyfing skapar sterkara samfélag. Það er kjarninn í leiðinni frá leikgleði til afreka. Höfundur er Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Íþróttir barna Frjálsar íþróttir Noregur Willum Þór Þórsson ÍSÍ Mest lesið Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Af hverju ég elska Ísland Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hugleiðing á degi náttúrunnar Kolbrún Haraldsdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar Skoðun Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Framtíð endurhæfingar á Norðurlandi Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fær þjóðin eðlilega rentu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun
Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar
Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun