Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. júlí 2026 13:03 Arnar Gunnlaugsson átti erfitt með að horfa á síðasta hálftímann hjá Englendingum í gær. vísir / GETTY „Það var bara erfitt að horfa á þetta,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands og sparkspekingur, um endalok Englands á HM. Hann tekur undir gagnrýni á kollega sinn Tomas Tuchel en segir þjálfara þurfa að taka ákvarðanir fljótt og það geti leitt til mistaka.
England féll úr leik á HM í gærkvöldi eftir 2-1 tap gegn Argentínu. Englendingar náðu forystunni á 55. mínútu en ákváðu þá að falla til baka og byrja að verjast með alla leikmenn á eigin vallarhelmingi. Argentínumenn fengu að halda boltanum, gengu á lagið og tókst að snúa leiknum sér í vil. Tomas Tuchel landsliðsþjálfari hefur verið harðlega gagnrýndur í bresku pressunni fyrir ákvarðanir sínar eftir að England náði forystunni. Í stað þess að halda áfram að sækja á Argentínumenn skipti Tuchel þremur varnarmönnum inn á: Ezri Konsa, Dan Burn og Nico O‘Reilly. „Það er auðvelt að sitja í sófanum með nammiskálina, eins og ég gerði í gær, og gagnrýna allt en þetta gerist svo fljótt. Þú ert tilfinningalega tengdur leiknum og stundum tekurðu bara vitlausar ákvarðanir. Tilgangurinn með þessu var að verjast en flestir sem sáu leikinn fannst þetta gerast of snemma… Þetta var allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins. Þetta var hálfgert hik og hræðsla. Ég held að fólk sé fyrst og fremst ósátt við það í Englandi. Og ég þekki alveg mína menn þar, þeir eru byrjaðir að hakka hann í sig,“ sagði Arnar Gunnlaugsson í Bítinu á Bylgjunni. Arnar er líka þeirrar skoðunar að England sé fánaberi fótboltans á alþjóðavísu og eigi að þora að spila fótbolta, frekar en að falla til baka og verjast. „Mér finnst bara að þegar þú ert svona stórþjóð, þá á bara eiginlega að vera í reglum að þú megir ekki gera þetta. Þú berð bara svo mikla ábyrgð á leiknum sjálfum. Þetta má ekki alltaf bara snúast um að vinna hvernig sem er. Þú berð ákveðna ábyrgð sem toppþjóð, hversu barnalega sem það kann að hljóma,“ sagði Arnar. „Það sló mig bara hversu mikið var talað um í aðdraganda mótsins að liðið ætti að spila á ákveðinn hátt, svo kemur bara stærsti leikur mótsins og þá sjáum við eitthvað allt annað,“ bætti Arnar við.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans. 16. júlí 2026 10:01 Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. 16. júlí 2026 07:35 Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. 15. júlí 2026 21:51 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira
Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans. 16. júlí 2026 10:01
Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. 16. júlí 2026 07:35
Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. 15. júlí 2026 21:51