Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. júlí 2026 12:20 Burnham segist engar ákvarðanir hafa tekið um skipan ríkisstjórnarinnar. Getty/Carl Court Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, er nú formlega formaður Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu af Keir Starmer á mánudaginn. Burnham heitir því að verða forsætisráðherra allra Breta, hlusta á þjóðina og vinna í hennar þágu.
Burnham, sem var valinn næsti leiðtogi flokksins með einróma stuðningi þingmanna, þakkaði Starmer fyrir hans störf og sagði að hans yrði minnst sem mannsins sem leiddi flokkinn frá sínum stærsta ósigri til síns stærsta sigurs. Burnham sagði Starmer að þakka að Verkamannaflokkurinn væri nú aftur í stöðu til að breyta lífi almennings til hins betra. Hinn nýi leiðtogi sagði að heiðarleiki væri forsenda breytinga og að stjórnmálamenn sinnar kynslóðar, hann sjálfur þeirra á meðal, þyrftu að horfast í augu við að þeim hefði mistekist. Nýfrjálshyggjan (e. neoliberalism) hefði ekki farið mjúkum höndum um þau samfélög þar sem Verkamannaflokkurinn hefði sótt stuðning sinn. Burnham sagðist vilja lækna þá sundrung sem nú ríkti og vinna að „nýrri pólitík“. Stjórnmálamenn hefðu ef til vill gaman að því að skora stig með því að skjóta hvor á annan en almenningur hefði það ekki. Á sama tíma hét hann því að gildi Verkamannaflokksins yrðu höfð í hávegum. „Við munu ekki reyna að verða grænni en Græningjar eða vera meira Reform en Reform, né gera það sem við höfum gert of mikið af í fortíðinni; að klæðast fötum Íhaldsins. Ég segi það satt; ég er ánægður með það að Kemi er ósátt við klæðaburðinn minn, því ég er ekki hrifinn af þeirra,“ sagði Burnham og vísaði þar í gagnrýni formanns Íhaldsflokksins. Ekkert um utanríkisstefnuna né breytingar á ríkisstjórninni Burnham hét því að taka aftur stjórnina; afnema miðstýringu ríkisvaldsins og einkavæðingu innviða. Gerði hann því skóna að ríkisstjórn hans myndi grípa til aðgerða til að hafa áhrif á kostnaðarliði á borð við leigu og verð á nauðsynjavöru. It’s the honour of my life to be Leader of the Labour Party.I will be a leader for every region and nation in this great country, and this Party will be unashamedly Labour in our priorities and in the decisions we take. Together, we will set Britain on a new path. https://t.co/7SYlOp9qO6— Andy Burnham (@andyburnham) July 17, 2026 Burnham kom ekkert inn á utanríkisstefnu sína í ræðunni né heldur greindi hann frá breytingum á ríkisstjórninni. Hann sagðist engar ákvarðanir hafa tekið varðandi ráðherraskipan en að ný ríkisstjórn myndi endurspegla alla breiddina í flokknum og öll samfélög. Þess er beðið með nokkurri eftirvæntingu að Burnham skýri afstöðu sína í utanríkismálum en hann hefur til að mynda sætt miklum þrýstingi um að taka harðari afstöðu með íbúum Gasa. Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra, var ekki staddur fundinn í hádeginu en hann er að ljúka síðustu opinberu heimsókn sinni til Kænugarðs. Þar hét hann áframhaldandi stuðningi Breta við Úkraínu.
Bretland England Skotland Norður-Írland Wales Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira