Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar 20. júlí 2026 07:02 Fótbolti hefur verið áberandi síðastliðnar vikur, þar sem stór hluti heimsbyggðarinnar hefur fylgst með fjölda leikja, gleði og sorgum ýmissa landa og stuðningsmanna þeirra. Nýjar hetjur verða til, bæði í einstökum leikmönnum og heilum liðum sem standa sig betur en gert var ráð fyrir. Fótbolti er einhvern veginn þannig íþróttaleikur, allt getur gerst, allt er mögulegt. Enda er fótbolti ekki bara einhver íþrótt, fótbolti er sú íþrótt sem er mest stunduð í heiminum og samkvæmt áhorfendatölum hefur um það bil helmingur heimsbyggðarinnar horft á lokaleik HM síðustu skipti. „Fótbolti sameinar heimsbyggðina“ var slagorð HM í ár og fótbolti getur svo sannarlega sameinað fólk í ánægjulegri reynslu, fullri af spennu og ástríðu fyrir því hvað gerist á vellinum. En fótbolti gegnir ekki síður mikilvægu sameiningarhlutverki utan vallar. Hann hefur til dæmis sameinað fólk gegn óréttlæti kynþáttahyggju. Baráttan gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku er eitt sterkasta dæmið um það. Aðskilnaðarstefnan var studd af valdamestu löndum heims, líkt og Ísrael er dyggilega stutt af valdamestu löndum heims núna. Baráttan gegn aðskilnaðarstefnunni lenti því á svörtu fólki í Suður-Afríku, öðrum Afríkuríkjum og almenningi um allan heim. Í slíkum aðstæðum verður sniðganga mikilvægt tól. „No normal sport in an abnormal society“ var slagorðið sem notað var fyrir einangrun Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Þetta slagorð gæti einnig átt við um Ísrael í dag og hlutverk fótbolta í baráttunni gegn kynþáttamisrétti gefur vonir um að hann geti líka sameinað heimsbyggðina gegn þjóðarmorði. Nú, þriðjudaginn 21. júlí, eru liðsmenn Víkings settir í þá óafsakanlegu stöðu að eiga að spila fótboltaleik gegn ísraelska liðinu Hapoel Beer Sheva. Þar með er UEFA að setja liðsmenn í þá stöðu að vera samsekir með því að normalísera Ísrael sem venjulegt ríki, frekar en landránsnýlendu sem hefur núna í tæp þrjú ár verið sekt um þjóðarmorð á palestínsku þjóðinni. KSÍ ber einnig ábyrgð á því að vera ekki búið að berjast fyrir brottrekstri Ísraels úr FIFA. Það er ólíklegt að Víkingsliðar sleppi úr þessari ömurlegu stöðu sem þeir hafa verið settir í, nema auðvitað að þeir kjósi það sjálfir að spila ekki leikinn. Ísrael varð jú ekki hluti af UEFA fyrr en árið 1994 eftir að ljóst var að ekki gengi að vera innan AFC, Knattspyrnusambands Asíu, þar sem mörg lönd neituðu að spila gegn Ísrael. En það er ekki of seint fyrir KSÍ að standa með réttlæti, sjá til þess að fleiri lið verði ekki sett í þessar aðstæður og sýna baráttuþrek utan vallar. Þörf er á að þrýsta á UEFA og FIFA að gera hið rétta, eins og fordæmi eru fyrir. FIFA var með þeim fyrstu sem tóku afstöðu gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku. Það var að sjálfsögðu eftir mikinn þrýsting frá CAF, Knattspyrnusambandi Afríku. Ákvörðunin um að vísa Suður-Afríku úr sambandinu hafði því mikil áhrif á því að vekja athygli heimsbyggðarinnar á aðskilnaðarstefnunni og styrkja baráttuna á alþjóðasviðinu. Þá náði FIFA að vera leiðandi í baráttu fyrir réttlæti. Það er ekki þörf á að vekja athygli á framferði Ísraels gegn Palestínu, ástandið er löngu orðið öllum ljóst. En í ljósi aðgerðarleysis valdamikilla landa hafa FIFA, og KSÍ með þrýstingi á FIFA, nú möguleika á að vera með í lokahnykknum fyrir réttlæti. Ég hvet Víkinga og stuðningsfólk þeirra til að sitja ekki þögul hjá nú þegar þeir eru settir í þessa stöðu samsektar. Auðvitað hefði þessi leikur aldrei átt að vera á dagskrá. KSÍ verður að beita sér innan UEFA og FIFA og ýta á að hin sjálfsagða ákvörðun verði tekin að vísa Ísrael úr sambandinu, eins og gert var með Suður-Afríku á sínum tíma sem og Rússland. Sýnið það hvers megnugur fótboltinn er og að við getum öll sameinast gegn þjóðarmorði og fyrir réttlæti og mannréttindum. Höfundur er mannfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar