„Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Agnar Már Másson skrifar 20. júlí 2026 21:04 Ronja Rán Palladóttir og Friðrik Rúnar Friðriksson ásamt tvíburadætrum sínum, sem eru í augnablikinu kallaðar tvíburi A og B. Vísir/Lýður Valberg Nýbakaðir foreldrar tvíbura hafa kært ákvörðun Vinnumálastofnunar, sem synjaði móðurinni um fæðingarorlof. Móðirin uppfyllti ekki lengur kröfur um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa gengist undir bráðakeisara sex vikum fyrir settan dag.
Ronja Rán Palladóttir og Friðrik Rúnar Friðriksson eignuðust tvíburadætur eftir bráðakeisaraskurð þann 27. júní – sex vikum fyrir settan dag, sem var 7. ágúst næstkomandi. Þau segja að Ronja hafi farið í bráðakeisara að læknisráði þar sem hún og annar tvíburinn, sem glímdi við vaxtarskerðingu í móðurkviði, hafi bæði verið í lífshættu. Aðgerðin gekk vel og bæði móðurinni og tvíburunum heilsast vel í dag, en vegna vaxtarskerðingarinnar er annar tvíburinn nokkuð smærri en systir hans. Ronja og dóttir hennar.Vísir/Lýður Valberg Nokkrum dögum eftir fæðinguna, meðan Friðrik og Ronja voru enn með stelpunum á vökudeild Landspítalans, fengu þau slæmar fréttir: „Svo tékkar hún á Island.is og fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt [er] ömurlegt,“ segir Friðrik Rúnar. Vinnumálastofnun hafi synjað Ronju um fæðingarorlof á þeim grundvelli að Ronja hefði ekki unnið í hið minnsta 25 prósenta starfshlutfalli í sex mánuði samfleytt fram að fæðingunni, sem er skilyrði fyrir fæðingarorlofi. Heldur hafi Ronja verið í 20 prósenta starfi á frístundaheimili í Borgarnesi í lok desember og svo 100 prósenta starfi á leikskóla í fimm mánuði fram að keisaraskurðinum. Það dugði greinilega ekki til, en foreldrarnir benda á að ef börnin hefðu fæðst á settum degi hefði Ronja uppfyllt skilyrðin og þar með átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Tvíburarnir sváfu værum svefni á meðan á viðtalinu stóð.Vísir/Lýður Valberg Jafnvel ef bráðakeisaraskurðinum hefði verið frestað um nokkra daga fram í júlí hefðu þau náð að uppfylla skilyrðin, að sögn Ronju. Þeim finnst því ákvörðun Vinnumálastofnunar skjóta skökku við enda hafi þau ekki átt neinna kosta völ en að fara í keisaraskurð. „Þá hringjum við og okkur er bara sagt að það sé ekkert sem við getum gert. Við vorum fyrst búin að gefast upp en ákváðum að reyna allt þannig að við sóttum um fæðingarstyrki, skoðuðum öll réttindi okkar og svoleiðis,“ segir Friðrik. Önnur tvíburasystirinn glímdi við vaxtarskerðingu í móðurkviði.Vísir/Lýður Valberg Friðrik á enn rétt á tveggja mánaða fæðingarorlofi en eftir situr Ronja nú atvinnulaus. Fréttastofa leitaði til Vinnumálastofnunar vegna málsins, en þar fengust þau svör að stofnunin tjáði sig ekki um einstök mál. Friðrik og Ronja hafa nú kært synjunina til úrskurðarnefndar velferðarmála og vonast til þess að nefndin felli ákvörðun Vinnumálastofnunar úr gildi. „Ég vona svo innilega að kerfið breyti þessu, að fleiri konur sem hafa lent í þessu – og munu sennilega lenda í þessu í framtíðinni – fái orlofið sitt.“
Börn og uppeldi Fæðingarorlof Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira