„Okkur vantar klárlega kantmann“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. júlí 2026 16:01 Iraola sat fyrir svörum vestanhafs í gær. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, segir augljóst að félagið þurfi að styrkja ákveðnar stöður í leikmannahópi þess fyrir komandi leiktíð. Undirbúningstímabil liðsins er komið á fullt í Chicago í Bandaríkjunum.
Mánuður er þar til flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni og eftir að heimsmeistaramótinu lauk á sunnudaginn var má gera ráð fyrir að félagsskiptamarkaðurinn í Evrópu fari á fullt. Undirbúningur er hafinn hjá öllum liðum fyrir komandi átök. Liverpool æfir í Chicago í Bandaríkjunum þessa dagana og á fyrir höndum þrjá æfingaleiki vestanhafs. Sá fyrsti er við Sunderland í Nashville á laugardaginn, svo við Wrexham í New York um miðja næstu viku áður en liðið mætir Leeds United þann 2. ágúst. Andoni Iraola, þjálfari liðsins, er með unglegan hóp við æfingar þar vestanhafs enda hafa leikmenn sem léku á nýafstöðnu heimsmeistaramóti ekki komið til móts við hópinn enn sem komið er. Liverpool hefur þegar keypt tvo leikmenn í sumar; franska varnarmanninn Jérémy Jacquet og spænska kantmanninn Víctor Munoz. Enn er þó þörf á frekari kaupum, eftir brottför þeirra Mohamed Salah, Andy Robertson og Ibrahima Konaté. Aðspurður um hvað vantaði sagði Iraola: „Ég held að það sé erfitt að segja til um tölu. Þegar markaðurinn er opinn verður maður alltaf að vera opinn fyrir nýjum möguleikum til að bæta hópinn,“ „Það eru augljósar stöður á vellinum þar sem er klárt að við þurfum nýja leikmenn. Til dæmis vængmenn, okkur vantar klárlega kantmann. Hvað aðrar stöður varðar þurfum að greina hvað markaðurinn býður upp á, hver kostnaðurinn er og hvernig við sjáum líka leikmennina sem við höfum,“ segir Iraola og bætir við: „Svo eru einhverjar stöður þar sem erum með meidda leikmenn sem við treystum, en það er samt ekki kjörstaða, svo það fer eftir ýmsu.“ Liverpool hefur hvað helst verið orðað við Bradley Barcola, kantmann PSG, og Yan Diomande, kantmann RB Leipzig. Báðir eru í dýrari kantinum og ekki víst að stjórnarmenn félagsins séu reiðubúnir að greiða uppsett verð. Aðrir kantmenn sem hafa verið nefndir til sögunnar eru Said El Mala, 19 ára kantmaður Köln og Andreas Schelderup, Benfica, sem heillaði með norska landsliðinu á HM.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Sjá meira