Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar 23. júlí 2026 11:00 Það er með miklum ólíkindum að vera Íslendingur þessa dagana. Hver um annan þveran keppast þeir við að lýsa getuleysi okkar og aumingjaskap. Nei-sinnarnir. Það telja þeir að sé vænlegast til sigurs. Hafið þið einhvern tíma heyrt um samninga þar sem annar samningsaðilinn keppist um það fyrirfram að láta eins og hann viti nákvæmlega hvað út úr samningunum kemur? Hreykir sér af því að vita að það sé ekki hægt að ná samningum um þetta eða hitt? Finnst ykkur þetta í alvörunni trúverðugt? Hafið þið einhvern tíma velt fyrir ykkur stöðu og viðhorfi Íslendinga til landhelgisdeilunnar? Haldið þið að sé líklegt að við hefðum náð árangri ef við hefðum viðhaft sama viðhorf og Nei-sinnar halda á lofti núna? Að Íslendingar geti ekki náð árangri í samningaviðræðum. Að við séum afglapar og aumingjar þegar að samningatækni kemur? Er þetta sjálfsmyndin sem við viljum gefa út af okkur alþjóðlega núna, Íslendingar? Er þetta nýja sjálfsmyndin sem við ætlum að bera á borð? Sjálfsmyndin sem Ólafur Ragnar Grímsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Halldór Benjamín Þorbergsson og aðrir Nei-sinnar halda á lofti? Og þá að aumingjaskap Evrópubúa. Íslendingar eiga met í því að hafa búið til stærsta gjaldþrot heimssögunnar. Ekki í neinu öðru ríki sem ég hef heyrt um hefur tekist að gera gjaldþrota í einni svipan 65% allra fyrirtækja í landinu eins og gerðist á Íslandi. Einstaklingar í þessu ríki telja sig þess umkomna núna að hæðast að Evrópubúum vegna þess hversu illa þeir eru undirbúnir fyrir loftslagsbreytingar. Ég verð að segja að heldur fyndist mér meiri bragur að því að þessi þjóð – Íslendingar – sýndi nokkra auðmýkt þegar að því kemur að telja sig þess umkomna að hæðast að öðrum þjóðum fyrir viðbragðsleysi þegar að slíkum hamförum kemur. Viðbragðsleysið, og hreinlega kæruleysið þegar stærsti hluti þjóðarinnar fór lóðbeint á hausinn í upphafi aldarinnar, var eitthvað sem ætti tryggja að þessi þjóð kynni mannasiði og sýndi auðmýkt þegar kemur að samanburði við aðrar þjóðir. Íslendingar voru algjört forysturíki þegar kom að því að fara illa með fyrirtæki og einstaklinga í hruninu. Ekkert annað ríki komst nálægt því að hrunið hefði eins víðtæk áhrif á allan almenning eins og það hafði hér. Þið, auðmenn Íslands sem eigið peningana í landinu, teljið ykkur þess umkomna að koma í veg fyrir að ég og þau önnur sem hafa „venjulegar tekjur“ geti nokkurn tíma komist út úr þeim vítahring sem íslenska krónan skapar okkur öllum. Þið viljið eiga okkur með húð og hári um alla framtíð. Og forystufólk verkalýðsfélaganna ætlar að tryggja að þið munuð eiga okkur um alla framtíð. Ólafur Ragnar Grímsson, sem var í forystu fyrir upphafningu Mammons og þjóðernisrembuna sem hér réð ríkjum árum saman, er í því að kalla til gamla guðlega karla fyrir íslenska þjóð að horfa til í andakt – Badenbacher er einn þeirra. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þessi karl veit mikið um íslenskan raunveruleika. Hvað hann er vel að sér um það hvernig er að lifa í landinu Íslandi með íslenska verðtryggða krónu sem hina einu sönnu mynt og hvernig það er að vera „venjuleg manneskja“ í því samfélagi. Það er nú aldeilis líklegt að þessi karl viti allt um það! Má ég biðla til ykkar landar mínir að vera með opin augun í þeim málatilbúnaði sem Nei-sinnar halda á lofti? Má ég minna á að í atkvæðagreiðslunni framundan erum við ekki að ganga í Evrópusambandið. Í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst erum við að gefa okkur tækifæri til að skipta mögulega um kúrs til langrar framtíðar. Með því að segja JÁ við aðildarviðræðum erum við að segja já við því að komast að því hvað við getum í aðildarviðræðum. Við erum að segja já við því að vita hversu góða samningamenn við eigum. Hvaða niðurstöðu við getum fengið í aðildarviðræðum. Til þess að geta svo að lokum sagt „já“ eða „nei“ við því að Ísland gangi í Evrópusambandið. JÁ í ágúst gefur opið tækifæri. Nei í ágúst lokar dyrum að mögulegum breytingum um langa framtíð. Höfundur starfaði í milliríkjaviðskiptum í 30 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun