Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 23. júlí 2026 15:01 Nú þegar flestir eru í sumarfríi og margir verja meiri tíma en ella með fjölskyldu, börnum, barnabörnum, ömmum, öfum og vinum, upplifa margir einn af hápunktum ársins. Sameiginlegar ferðir, grillkvöld, útivist og rólegar stundir geta skapað minningar sem endast ævina. En aukin samvera getur líka verið krefjandi. Þegar margir einstaklingar með ólíkar þarfir, væntingar og persónuleika koma saman er eðlilegt að alls konar tilfinningar vakni. Flest þráum við að ástvinum okkar líði vel, að þeir séu ánægðir og njóti samverunnar. Því geta fylgt ýmsar tilraunir til þess að láta þeim líða vel og mæta þörfum þeirra. Það er fallegur eiginleiki að vilja hugsa vel um fólkið sitt og leggja sig fram við að gleðja það. Vandinn skapast hins vegar þegar eigin vellíðan verður háð því að öllum öðrum líði vel. Þá verður innri ró okkar háð einhverju sem við höfum í raun takmarkaða stjórn á. Við reynum að slétta yfir ágreining, leysa vandamál annarra, halda öllum ánægðum og tryggja að enginn verði fyrir vonbrigðum. En það verkefni er einfaldlega ómögulegt. Við getum ekki stjórnað tilfinningum annarra. Við getum ekki uppfyllt allar þarfir allra. Og við getum ekki komið í veg fyrir að fólk upplifi stundum pirring, leiða, streitu eða vonbrigði. Ef við reynum það samt endar það oft með því að við tæmum eigin orkuforða. Við gleymum eigin þörfum, fáum minni tíma til hvíldar og endurhleðslu og verðum sjálf óþolinmóðari, viðkvæmari og síður til staðar fyrir fólkið sem okkur þykir vænst um. Það felst ákveðin þversögn í þessu. Ein áhrifarík leið til að vera góður maki, foreldri, afi, amma, vinur eða samstarfsfélagi er ekki að reyna stöðugt að tryggja hamingju allra annarra heldur að passa vel upp á eigið jafnvægi. Þegar við mætum eigin grunnþörfum, fáum nægan svefn, hreyfum okkur, gefum okkur andrými, nærum okkur vel og gefum okkur leyfi til að hlaða batteríin, eigum við einfaldlega miklu meira til að gefa. Að hugsa vel um eigið jafnvægi er ekki eigingirni. Það er forsenda þess að geta verið til staðar fyrir aðra til lengri tíma. Taugakerfi okkar geta haft áhrif hvert á annað Það sem skiptir kannski mestu máli er að þetta er ekki aðeins sálfræðilegt fyrirbæri. Lífeðlisfræðilegt ástand okkar getur haft áhrif á fólkið í kringum okkur, sérstaklega í nánum samskiptum. Þegar við hugsum vel um eigið jafnvægi erum við því ekki aðeins að hjálpa okkur sjálfum heldur einnig þeim sem við deilum lífinu með. Þessi gagnkvæmu áhrif eru kölluð samreglun (co-regulation). Rannsóknir í sálfræði, taugalífeðlisfræði og félagslegri taugavísindum hafa aukið skilning okkar á þessu fyrirbæri og sýna að líðan okkar, hegðun og lífeðlislegt ástand mótast ekki aðeins af því sem gerist innra með okkur heldur einnig af fólkinu í kringum okkur. Flest höfum við upplifað þetta. Við göngum inn í herbergi þar sem mikil spenna ríkir og finnum það nánast samstundis. Á sama hátt getur róleg og yfirveguð manneskja haft þau áhrif að okkur líður sjálfum öruggari án þess að hún segi eitt einasta orð. Þetta er ekki bara tilfinning, það á sér mælanlegar lífeðlislegar skýringar. Speglun heilans er aðeins hluti sögunnar Um árabil hafa svokallaðar spegilfrumur verið taldar gegna mikilvægu hlutverki í því hvernig við lesum tilfinningar og fyrirætlanir annarra. Þó að þær gegni mikilvægu hlutverki m.a. í félagslegri skynjun er í dag talið að samreglun sé mun flóknara fyrirbæri sem byggist á samspili margra heilakerfa fremur en einu ferli. Heilinn vinnur stöðugt úr upplýsingum úr umhverfinu og notar þær til að leiðbeina í vali á viðbrögðum okkar. Taugakerfin okkar „tala saman“ Samreglun á sér ekki aðeins stað í heilanum heldur tekur líkaminn einnig virkan þátt. Við sendum stöðugt frá okkur og nemum vísbendingar um öryggi eða hættu, þ.á.m. félagslegar vísbendingar, meðal annars í gegnum svipbrigði, augnsamband, raddblæ, líkamsstöðu og öndun. Heilinn vinnur úr þessum upplýsingum frá eigin líkama á augabragði og metur, oft án meðvitaðrar hugsunar, hvort aðstæður virðast öruggar eða hvort ástæða sé til aukinnar árvekni. Þetta mat hefur síðan áhrif á hvernig sjálfvirka taugakerfið bregst við. Þegar heilinn metur merki um öryggi og ró hjá fólkinu í kringum okkur er líklegra að virkni sefkerfisins (e. parasympathetic) aukist. Þá eykst hjartsláttarbreytileiki (HRV), öndunin verður jafnari og við eigum auðveldara með að hugsa skýrt, hlusta og tengjast öðrum. Á hinn bóginn geta félagslegar vísbendingar sem heilinn túlkar sem merki um streitu, óöryggi eða hugsanlega ógn aukið virkni drifkerfisins (e. sympathetic). Þá verður öndunin grynnri og örari, hjartsláttur hækkar, HRV minnkar og við verðum líklegri til að túlka aðstæður sem ógnandi, bregðast við af pirringi eða missa þolinmæðina. Lífeðlisfræðileg samstilling milli fólks Rannsóknir sýna einnig að þegar fólk á í nánum og virkri samveru getur lífeðlisfræðileg virkni þess orðið tímabundið samstillt. Hjartsláttur, öndun og húðleiðni sýna svipað mynstur meðan fólk hlustar hvert á annað, vinnur saman eða deilir sterkri reynslu. Slík samstilling hefur meðal annars verið sýnd milli foreldra og barna, para, kennara og nemenda og jafnvel milli meðferðaraðila og skjólstæðinga. Rannsóknir benda til þess að hún tengist aukinni samkennd, betri samskiptum og sterkari félagslegum tengslum. Þetta þýðir þó ekki að tilfinningar „flytjist“ sjálfkrafa á milli fólks, heldur virðist það vera þannig að taugakerfi okkar geti aðlagast hvert öðru í samskiptum og að það geti auðveldað okkur að skilja, styðja og samræma viðbrögð okkar hvert við öðru. Þess vegna getur róleg og yfirveguð nærvera eins einstaklings haft meiri áhrif en við gerum okkur oft grein fyrir. Hún getur aukið líkurnar á því að fólkið í kringum okkur upplifi meira öryggi, meiri ró og eigi auðveldara með að finna eigið jafnvægi. En hið gagnstæða getur einnig átt við. Þegar við erum langvarandi örmagna eða undir mikilli streitu eigum við sjálf oft erfiðara með að miðla þeirri ró og þeim félagslegu vísbendingum sem styðja við upplifun á öryggi og ró. Þess vegna getur það að hugsa vel um eigið jafnvægi verið ein besta gjöf sem við gefum bæði okkur sjálfum og fólkinu sem okkur þykir vænst um. Kannski er því ein mikilvægasta spurning sumarsins ekki: Hvernig get ég gert alla aðra ánægða? Heldur: Hvað get ég gert í dag til að hjálpa taugakerfinu mínu að finna meira jafnvægi, svo ég geti verið sú manneskja sem ég vil vera fyrir fólkið mitt? Höfundur er doktor í lífeðlislegri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar