Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar 24. júlí 2026 07:39 Þann 22. júlí birti fjármálaráðuneytið „Ársskýrslu ríkisfyrirtækja 2025“. Í ávarpi ráðherra með skýrslunni segir m.a: Það er „eðlilegt og sjálfsagt að ríkið geri sanngjarna kröfu um arðsemi“. „Ríkisfyrirtæki verða að sína fram á að þau skapi raunverulegt virði fyrir samfélagið“ og „að þau fylli í skarð sem önnur fyrirtæki á markaði ráða ekki við“. „Eðli málsins samkvæmt hafa ríkisfyrirtæki sterka stöðu og þar með mikið vald sem þarf að fara varlega með“. Ríkisfyrirtæki þurfa að gæta þess „að teygja sig ekki lengra í rekstri en nauðsynlegt er og raska ekki þeim samkeppnismarkaði sem þau eiga snertifleti við“. „Frelsið til að starfa og keppa á frjálsum markaði er grundvallargildi, og ríkisfyrirtæki mega ekki hindra eða raska þeirri samkeppni með óeðlilegri háttsemi.“ Rekstur ríkisfyrirtækja „verður að standast ströngustu kröfur um gagnsæi, ábyrgð og árangur“. Við hjá Straumlind tökum heilshugar undir orð ráðherra og teljum að þau endurspegli það umhverfi sem íslensk lög mæla fyrir um að íslensk fyrirtæki á samkeppnismarkaði eiga að búa við. Staðan á orkumarkaði Mjög margt hefur breyst á orkumarkaði frá árinu 2006 þegar framleiðsla og smásala raforku urðu að samkeppnismörkuðum: Nýir raforkusalar hafa komið á markað, viðskiptavettvangar (ELMA og Vonarskarð) hafa tekið til starfa, snjallmælavæðing, rafbílavæðing, hleðsluinnviðauppbygging og svo mætti lengi telja. Ríki og sveitarfélög eru allt umlykjandi á orkumarkaði. Opinberir aðilar framleiða 93% af öllu rafmagni, flytja og dreifa 100% af öllu rafmagni á grundvelli sérleyfa og markaðshlutdeild raforkusala í opinberri eigu er um 60%. Af fimm framleiðendum í opinberri eigu selja þrír framleiðslu sína beint til eigin smásöludeildar með innri sölu og einn selur alla framleiðslu sína til raforkusala í ríkiseigu á grundvelli tvíhliða langtímasamnings. Samkvæmt núverandi skipulagi eru flestir opinberir aðilar á orkumarkaði, vegna eigna- og stjórnunartengsla, í einhvers konar blönduðu hlutverki opinbers þjónustuveitanda sem á að gæta jafnræðis og samkeppnisaðila í framleiðslu og smásölu sem á að keppa við aðra. Að mati Straumlindar eru þessi blönduðu hlutverk stór ástæða þess að „markmið raforkulaga nr. 65/2003 um aukna samkeppni og neytendavernd hafi ekki náð fram að ganga sem skildi á þeim tæplega tuttugu árum sem lögin hafa verið í gildi", eins og Samkeppniseftirlitið komst svo vel að orði. sbr. síðar. Nánar tiltekið eru ástæðurnar einkum eftirtaldar: 1. Skortur á aðskilnaði dreifiveitna og tengdum raforkusölum veldur viðvarandi og óyfirstíganlegum hagsmunaárekstrum. Orkubú Vestfjarða Framleiðandi, dreifiveita og raforkusali í einu félagi, sem er einungis mögulegt vegna undanþágu frá aðskilnaðarkröfu í raforkulögum. Tímaskekkja sem nauðsynlegt er að breyta. Rarik og Orkusalan Að mati Straumlindar er engin von til þess að markmiðið um að samkeppni á orkumarkaði eflist og styrkist á meðan Rarik og Orkusalan eru lóðrétt samþætt. Ákvæði raforkulaga um bókhaldslegan aðskilnað dreifiveitu og smásölu rafmagns án stjórnunarlegs aðskilnaðar þessara aðila er algerlega ófullnægjandi í núverandi markaðsumhverfi. Forstjóri Rarik er stjórnarformaður Orkusölunnar. Arðgreiðslur Orkusölunnar gefa til kynna skort á sjálfstæði frá Rarik. Orkusalan greiðir fasta 250 milljón króna arðgreiðslu til Rarik óháð rekstrarafkomu, sbr. upplýsingar úr ársreikningum. Ár Hagnaður OS (m.kr.) Arður til Rarik (m.kr.) Arður sem % af hagnaði OS 2019 640 250 39% 2020 849 250 29% 2021 466 250 54% 2022 85 250 294% 2023 39 250 641% 2024 365 250 68% 2. Skortur á jafnræði milli raforkusala um kaup á orku sem ríkið framleiðir. Bæði Orkubú Vestfjarða og Orkusalan selja framleiðslu úr eigin virkjunum nánast alfarið til eigin söludeilda og nánast ekkert á jafnræðisgrundvelli á opnum heildsölumarkaði. Innri sala býður ýmsum hættum heim varðandi starfshætti ríkisfyrirtækis á samkeppnismarkaði, s.s. Kross-niðurgreiðslur milli framleiðslu- og söluhluta verða mögulegar. Undirboð vegna kross-niðurgreiðslna verða möguleg. Innri sala fyrirtækja í opinberri eigu á að fara fram á markaðskjörum (til að virða armslengdarreglu) og þess vegna er nauðsynlegt að haft sé eftirlit með innri sölu. Innri sala minnkar framboð á heildsölumarkaði, sem dregur úr verðmyndun og samkeppni á þeim markaði. Dæmi um óeðlilega háttsemi eru fjölmörg Á undanförnum árum hefur verið úrskurðað í ýmsum málum þar sem óeðlileg háttsemi orkufyrirtækja í ríkis- eða opinberri eigu er staðfest. Við það bætist fjöldi mála/kvartana sem Samkeppniseftirlitinu, Raforkueftirlitinu og Neytendastofu hafa borist vegna starfshátta orkufyrirtækja í ríkis- eða opinberri eigu, sem eru enn í vinnslu. Að mati Straumlindar varpa þessi mál ljósi á veikleikana í núverandi uppbyggingu orkumarkaðarins. Varnaðarorð Samkeppniseftirlitsins Í athugasemdum Samkeppniseftirlitsins við drög að breytingu á reglugerð nr. 1150/2019 um raforkuviðskipti og mælingar, dags. 2. júní 2023, segir m.a: „Samkeppniseftirlitið hefur um langa hríð bent á að markmið raforkulaga nr. 65/2003 um aukna samkeppni og neytendavernd hafi ekki náð fram að ganga sem skildi á þeim tæplega tuttugu árum sem lögin hafa verið í gildi." Samkeppniseftirlitið hefur jafnframt bent á einkenni þegjandi samhæfingar á raforkumarkaði, þ.e. samhæfðra viðbragða lóðrétt samþættra orkufyrirtækja sem takmarkar samkeppni. Loks hefur Samkeppniseftirlitið bent á að stór og öflug opinber fyrirtæki búi við verulegt samkeppnisforskot gagnvart minni óháðum sölufyrirtækjum. Vandamál á orkumarkaði hafa ágerst með aukinni samkeppni Að mati Straumlindar hafa vandamál á orkumarkaði ágerst með aukinni samkeppni á markaði. Tjón vegna skorts á heilbrigðum markaði fer sömuleiðis vaxandi eftir því sem fleiri aðilar reyna að taka þátt á markaðinum og eftir því sem hin fyrrverandi einokunar ríkisfyrirtæki þurfa meira og meira að verja eigin markaðshlutdeild. Þessu verður að bregðast við. Þann 10. apríl 2026 sendi Straumlind fjármálaráðherra bréf sem m.a. fjallaði um þessi atriði. Í bréfinu segir: „Straumlind skorar á fjármálaráðherra að gefa upplýsingum og aðvörunum félagsins um stöðuna á raforkumarkaði gaum og hlutast til um að koma á raunverulegum úrbótum í krafti stöðu sinnar sem fyrirsvarsmaður hluta í eigu íslenska ríkisins. Straumlind skorar jafnframt á fjármálaráðherra að afla upplýsinga frá stjórn Rarik um hvernig hún hyggst bregðast við þeim upplýsingum sem Straumlind hefur komið á framfæri í bréfi þessu. Straumlind er reiðubúin að koma á fund ráðherra og svara öllum spurningum sem ráðherra kann að hafa. Straumlind langar að nefna tvær breytingar sem fjármálaráðherra getur beitt sér fyrir og myndu bæta möguleika allra raforkusala til að starfa á grundvelli heilbrigðrar samkeppni: Fullur aðskilnaður dreifiveitna og raforkusölu. Að orka sem framleidd er af virkjunum í eigu ríkisins verði seld á viðskiptavettvöngum (ELMA og Vonarskarð) í stað innri sölu.“ Höfundur er lögfræðingur og rekstrarstjóri Straumlindar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar