Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 24. júlí 2026 21:05 Mark Þórdísar Nönnu Ágústsdóttur tryggði Þrótti sigur á ÍBV og sæti í bikarúrslitum. vísir/anton Þórdís Nanna Ágústsdóttir reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík þegar liðið lagði ÍBV 1-0 að velli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur fer þar með í bikarúrslit í annað sinn í sögunni. „
Líðanin er alveg frábær. Ég hafði fulla trú á liðinu okkar. Ég er mjög spennt,“ sagði Þórdís Nanna, sem skoraði sigurmarkið á 80. mínútu, í samtali við Vísi eftir leikinn. Hún hafði komið inn á sem varamaður stundarfjórðungi fyrr og var að vonum ánægð með að hafa skorað sigurmarkið af harðfylgi. „Sú tilfinning er alltaf góð. Ég elska að skora. Eina markmiðið var að koma inn á og klára þennan leik. Ég sá að ég var orðin aðeins of sein til að ná á fjær þannig að ég ákvað að hlaupa og hoppa einhvern veginn á þetta og vona það besta. Ég var reyndar smá hrædd um að þetta væri brot en það skipti engu máli,“ sagði Þórdís Nanna. Við klárum þetta Þróttur mætir annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik þann 12. september næstkomandi. Aðspurð sagðist hún ekki vilja annað liðið frekar en hitt. Og þó. „Nei, ekkert frekar. Við vorum reyndar að tapa fyrir Grindavík/Njarðvík og ég væri alveg til í að fá þær aftur. Annars er mér bara alveg sama.“ Stigasöfnunin í Bestu deildinni hefur ekki verið eins og Þróttarar vonuðust eftir fyrir yfirstandandi tímabil. „Já, þetta tímabil er búið að vera svolítið upp og niður. Við erum ekki búin að fá alveg jafnmörg stig og við hefðum viljað fá í deildinni. En það er geggjað að vera komin í úrslit. Þetta er önnur keppni og við klárum þetta,“ sagði Þórdís Nanna Ágústsdóttir ákveðin í samtali við Vísi.
Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík ÍBV Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira