Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 22:35 Mirza Bulic hefur yfirgefið Keflavík og er búinn að semja við nágrannana í Grindavík. Grindavík Grindvíkingar tilkynntu í kvöld um fjóra nýja samninga við leikmenn fyrir titilvörnina í Bónus deild karla í körfubolta næsta vetur og þar af er einn nýr leikmaður.
Stærstu fréttirnar eru að Mirza Bulic, sem spilaði með Keflavík síðasta vetur, er búinn að skrifa undir hjá Grindavík en þá hefur Körfuknattleiksdeild Grindavíkur einnig endursamið við þá Daniel Mortensen, Val Orra Valsson og Nökkva Má Nökkvason. Allir skrifa þeir undir tveggja ára samning. Mirza er 209 sentimetra öflugur kraftframherji sem átti flott tímabil í Bónusdeildinni með Keflavík. Þar skilaði hann að meðaltali 18 stigum, 9 fráköstum og 2,6 stoðsendingum í leik. Hann var einnig með 22,3 í framlag, náði sex tvöföldum tvennum og var lykilmaður í liði Keflavíkur. „Mirza er leikmaður sem við höfum fylgst vel með. Hann hefur sýnt hvað hann getur í íslensku deildinni og við teljum að hann passi einstaklega vel inn í það lið sem við erum að byggja. Við hlökkum mikið til að fá hann til liðs við okkur,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, í frétt á miðlum félagsins. „Ég er virkilega spenntur að ganga til liðs við Grindavík og hlakka mikið til að koma til Íslands. Ég get ekki beðið eftir að spila fyrir framan ykkur og gefa allt sem ég á fyrir þetta lið. Gerum þetta að frábæru tímabili saman,“ sagði Mirza Bulic. Mirza kemur í stað Jordan Semple sem samdi við lið Álftanes á dögunum. Það er einnig mjög sterkt að halda Daniel Mortensen sem missti af lokum tímabilsins vegna meiðsla en hefur spilað stórt hlutverk í liðinu þegar hann er heill. „Mér hefur liðið einstaklega vel í Grindavík og það er eitthvað alveg sérstakt við að spila fyrir Grindavík og þetta samfélag. Við urðum Íslandsmeistarar á síðasta tímabili en ég á enn ólokið verkefni. Ég vil vinna titilinn aftur og færa bikarinn heim til Grindavíkur enn eitt árið,“ sagði Daniel Mortensen.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn Draumur að vinna með José Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Sjá meira