Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar 26. júlí 2026 10:02 Í umræðunni um mögulegar aðildaviðræður Íslands að ESB hafa andstæðingar aðildar fullyrt að ótímabundnar undanþágur séu ekki í boði. Því langar mig að koma á framfæri minni reynslu af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB og skrifa þar út frá reynslu minni þegar Finnland sótti um og fékk inngöngu í ESB 1995. Á þeim tíma vann ég sem ráðuneytisstjóri í ráðuneyti sem hafði viðskipta-, iðnaðar-, landbúnaðar-, veiði- og ferðamannamál á sinni könnu í heimastjórn Álandseyja sem eru hluti af Finnlandi. Það var ljóst í upphafi samningsviðræðnanna að samkvæmt heimstjórnarlögunum frá 1921 þyrfti löggjafarþing Álendinga að samþykka inngöngu f.h. Álandseyja og því var þjóðaratkvæðagreiðsla um málið haustið 1994. Mitt hlutverk var að gæta hagsmuna Álendinga við inngöngu Finnlands í ESB sem fulltrúi í teymi embættismanna undir stjórn heimastjórnarinnar. Ég hef verið búsettur á Íslandi síðan 1997. Bakgrunnur Álandseyjar eru með sérstöðu og heimastjórnarfyrirkomulag líkt og Færeyjar. Aðaltungumálið er sænska. Sérstaðan felst fyrst og fremst í því að einungis fólk með „heimastjórnarríkisborgarrétt“ má eiga fasteign, reka fyrirtæki og kjósa til löggjafarþings og sveitarstjórna. Eyjarnar hafa verið herlaust svæði frá 1856. Þegar Finnland fékk sjálfstæði frá Rússlandi (Sovét) 1917 vildu Álendingar tilheyra Svíþjóð, en finnska ríkistjórnin hafnaði því. Málið var tekið fyrir af Þjóðarbandalaginu í Genf sem komst að þeirri niðurstöðu að Áland skyldi tilheyra Finnlandi, en að eyjaklasinn fengi heimastjórn. Því var svo fylgt eftir með lagasetningum á árunum á eftir. Annað mál sem var mikilvægt í tengslum við inngöngu Álandseyja í ESB var að eyjaklasinn er mjög háður góðum samgöngum, aðallega með ferjum. Góðar samgöngur eru lykilforsenda fyrir efnahaginn bæði vegna vöruflutninga, en ekki síður vegna ferðamannaiðnarins, þar sem rúmlega tvær milljónir ferðamanna heimsækja eyjaklasann árlega. Ferjusamgöngur byggðu m.a. á sölu á tollfrjálsum varningi í siglingum milli eyjanna og meginlands Finnlands og Svíþjóðar. Aðalatriðin Út frá þessum bakgrunni voru kröfur Álandseyja eftirfarandi: Að tryggja að sérreglur um að einungis fólk með álenskan ríkisborgararétt megi eiga fasteign og reka fyrirtæki fengju að standa. Að tryggja að alþjóðlegir samningar um að Áland verði áfram herlaust og hlutlaust svæði héldu. Að leyfa áfram tollfrjálsa sölu í ferjusiglingum milli Álands og nágrannalandanna. Að auki var mikilvægt að tryggja lifandi byggð og landbúnað í eyjunum, en Álandseyjar eru veðursælar fyrir ræktun t.d. epla og kartafla, ásamt grænmæti, lauki og sykurrófa. Kröfur númer 1 og 3 samræmast ekki aðalregluverki Evrópusambandsins. Niðurstöður Finnland náði fyrir hönd Álendinga fram ágætum niðurstöðum. Sérstök bókun („Ålandsprotokollet“) var tekin upp í samninginn sem hluti af ESB regluverkinu og er ekki hægt að breyta henni nema með samþykki allra aðildarríkjanna. Með öðrum orðum er um varanleg ákvæði að ræða. Allar kröfurnar þrjár voru samþykktar – og ég fjalla ítarlegar um kröfu 3 hér að neðan. Landbúnaður Finnland ásamt Svíþjóð fengu varanlegar undanþágur frá regluverki ESB, fyrst og fremst fyrir landbúnað norðan 62. breiddargráðu þar sem sérstakir styrkir eru heimilaðir og ESB tekur þátt í að fjármagna. Að auki var samþykkt að greiða styrki til bænda sunnan þessarar línu. Allar þessir styrkir eru varanlegir. [Samningum um þennan málaflokk var stjórnað af finnska ríkisvaldinu án sérstaka krafna frá Álandseyjum, en niðurstöðurnar voru samþykktar af heimstjórninni.] Önnur starfsemi Fyrirtæki í t.d. ferðamannageiranum fengu stuðning úr mismunandi sjóðum ESB auk styrkja frá heimastjórninni, t.d. fyrir fjárfestingum í byggingum og tækjum. Þetta var sérstaklega mikilvægt fyrir starfsemi í skerjagarði Álandseyja, þar sem eyjar án vegasamgangna þurftu sérstakan stuðning. Tollfrjáls sala í siglingum Í ferðalögum milli landa ESB hafði skattfrjáls sala, t.d. á áfengi og snyrtivöru, verið afnumin að fullu. Fyrir Álandseyjar fannst lausn sem gekk út á að Áland var skilgreint sem „þriðja lands svæði“ sem þýddi að það féll utan skattasvæðis ESB varðandi virðisauka- og vöruskatta. Þar með er leyft að selja þennan varning í siglingum milli Álandseyja og nágrannalandanna án virðisauka- og vöruskatta. Á móti þarf að tollafgreiða vörusendingar. Álandseyjar eru innan evrópska tollsvæðisins og því eru engir tollar innheimtir. Þetta hefur leitt til þess að samgöngur eru áfram mjög góðar og vöruflutningar auðveldir. Lokaorð Nú eftir rúm 30 ár í ESB eru flestir Finnar ánægðir með sambandið. Það hefur opnað á nýja markaði og möguleika. Upptaka evru fyrir rúmlega 20 árum hefur auðveldað viðskipti og skapað stöðuleika. Eftir árás Rússlands á Úkraínu 2022 hefur verið lokað á öll viðskipti við Rússa sem hefur leitt til erfiðara efnahagsástands í Finnlandi. Á sama tíma þarf Finnland að leggja mikið fé í varnarmál vegna ástandsins. Meginástæður þessa erfiða efnahagsástands liggja því ekki í aðild Finna að ESB. Höfundur er er viðskiptafræðingur að mennt og fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í heimastjórninni á Álandseyjum og tók virkan þátt í ESB málum í Finnlandi á þessum tíma (1994-95). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar