Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2026 10:32 Jermain Defoe gerði góða hluti hjá Sunderland sem leikmaður. epa/PETER POWEL Yfirmaður knattspyrnumála hjá Woking tekur fulla ábyrgð á ráðningu Jermains Defoe sem hætti sem knattspyrnustjóri liðsins í síðustu viku. Lítil ánægja var með störf hans hjá Woking.
Á fimmtudaginn var greint frá því að Defoe væri hættur hjá Woking eftir aðeins fjögurra mánaða starf. Hann stýrði liðinu einungis í sex leikjum. „Því miður hafa aðstæður gert það ómögulegt fyrir mig að halda áfram í starfinu. Ég er afar stoltur af því starfi sem ég vann fyrir félagið og fannst við sannarlega vera að byggja upp eitthvað sérstakt,“ sagði Defoe. Jody Brown, yfirmaður knattspyrnumála hjá Woking, hefur nú stigið fram og sagt frá sinni hlið á samstarfinu við Defoe. „Hugmyndin að ráða Jermain var mín og ég tek fulla ábyrgð á henni. Eftir að hafa hitt hann nokkrum sinnum trúði ég því að hann væri rétti maðurinn til að leiða félagið inn í nýja og spennandi tíma,“ sagði Brown. Hann segir að sér hafi borist athugasemdir um störf Defoes víða að úr félaginu, meðal annars frá leikmönnum. Brown sagðist í kjölfarið hafa beðið Defoe um skýrslu varðandi leikmannamál en hún barst aldrei. „Í kjölfarið var boðað til fundar með stjórnarmönnum, knattspyrnustjóra, aðstoðarþjálfara og rekstrarstjóra til að fara yfir undirbúninginn fyrir tímabilið. Hvorki Jermain né aðstoðarmaður hans mættu á þann fund eða á æfingu sama dag,“ sagði Brown sem vildi ekki svara ummælum Defoes varðandi brotthvarf hans úr starfi. „Allan tímann sem hann var í starfi hafði Jermain aldrei komið neinum alvarlegum áhyggjum beint á framfæri við mig svo ég ætla ekki að geta mér til um ástæður hans,“ sagði Brown. Defoe lagði skóna á hilluna 2022 eftir langan feril þar sem hann fór víða. Hann skoraði tuttugu mörk fyrir enska landsliðið í 57 leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira