Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. júlí 2026 11:00 Andrea Pirlo mun ekki taka við ítalska landsliðinu. getty Andrea Pirlo var bannað að taka við starfi landsliðsþjálfara Ítalíu vegna tengsla hans við rússneskt veðmálafyrirtæki. Óvissa ríkir innan ítalska knattspyrnusambandsins og háttsettir embættismenn íhuga að hætta í mótmælaskyni við forsetann sem tók ákvörðunina.
Eftir að hafa mistekist að fá Pep Guardiola og Carlo Ancelotti til starfa beindi ítalska knattspyrnusambandið sjónum sínum að Andrea Pirlo. Pirlo staðfesti hins vegar í tilfinningaríkri færslu á Instagram í gærkvöld að hann væri „ekki lengur valkostur í stöðu landsliðsþjálfara“, vegna samstarfssamning hans við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet. Stjórnmálalegt samband Ítalíu og Rússlands hefur verið stirt síðan Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Íþróttamálaráðherra Ítalíu var meðal þeirra sem gagnrýndu fyrirhugaða ráðningu Pirlo og sögðu hana óviðeigandi í ljósi samstarfsins. Pirlo hefur birst í auglýsingum fyrir rússneska veðmálafyrirtækið og komið fram á viðburðum sem fulltrúi fyrirtækisins. „Þetta faglega samstarf sem hefur verið tilefni deilna undanfarið varð til sem hluti af starfsferli mínum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og er eingöngu af viðskiptalegum og íþróttalegum toga. Að gefa því pólitíska þýðingu eignar mér skoðanir sem ég hef aldrei látið í ljós og eru ekki mínar,“ skrifaði Pirlo einnig á Instagram. View this post on Instagram Í skrifum sínum þakkar Pirlo þeim Paolo Maldini, yfirmanni knattspyrnumála hjá Ítalíu, og Leonardo Araújo, ráðgjafa ítalska knattspyrnusambandsins í ráðningarferlinu. Hann sendir hins vegar engar kveðjur til forseta sambandsins, Giovanni Malagó. Ítölsku miðlarnir La Gazzetta dello Sport og Corriere dello Sport segja forsetann hafa tekið fram fyrir hendur Maldini og Leonardo þegar hann neitaði að ráða Pirlo til starfa. Maldini og Leonardo eru nú sagðir íhuga stöðu sína. Ljóst er allavega að allt logar innan ítalska knattspyrnusambandsins og leitin að nýjum þjálfara stendur enn yfir. Fundir verða haldnir á skrifstofu forseta knattspyrnusambandsins í dag til að reyna að finna lausn á málunum.
Ítalski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira