Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 07:33 Lisandro Martínez var skiljanlega svekktur að þurfa að yfirgefa völlinn í úrslitaleik HM vegna meiðsla. epa/CHRISTOPHER NEUNDORF Lisandro Martínez hefur gripið til varna fyrir argentínska landsliðið vegna gagnrýni á framkomu þess í úrslitaleik HM. Hann segir ekkert til í því að Argentínumenn hafi sýnt heimsmeisturum Spánverja vanvirðingu.
Argentínska liðið hefur fengið á baukinn eftir úrslitaleik HM þar sem það tapaði, 1-0, fyrir því spænska. Argentínumenn þóttu spila allt að því gróft og eftir leik sauð upp úr þar sem Leandro Paredes réðst að Eric García og Gavi. Roberto Ayala, aðstoðarþjálfara Argentínu, lenti einnig saman við Dani Olmo. Þá virtust leikmenn Argentínu snúa baki í spænska liðið þegar það tók á móti verðlaunum sínum. Martínez segir að um misskilning sé að ræða. „Myndin sem birtist af því þar sem við snerum baki í myndavélina var vegna þess að við vorum að syngja með stuðningsmönnum okkar. Við vorum að sýna þeim virðingu. Við gátum ekki farið. Eftir leikinn heilsuðum við öllum leikmönnum Spánar og starfsliðinu,“ sagði Martínez. Honum hefur sárnað umræðan um argentínska liðið eftir úrslitaleikinn. „Ég er með blendnar tilfinningar. Þetta reitir mig til reiði því það er enginn fótur fyrir þessu hatri. Þeir segja okkur hrokafulla en kannski segir það meira um þá sem segja þvíumlíkt en okkur. Við höfum alltaf sýnt andstæðingum okkar virðingu,“ sagði Martínez. Miðvörðurinn fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í úrslitaleiknum. Ekki liggur fyrir hvenær hann verður klár í slaginn á nýjan leik. Martínez og félagar í Manchester United hefja leik í ensku úrvalsdeildinni gegn nýliðum Hull City laugardaginn 22. ágúst næstkomandi.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira