Dramað á Ítalíu heldur áfram: Maldini hættur eftir aðeins sextán daga í starfi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 08:32 Paolo Maldini gat ekki sætt sig við afskipti forseta ítalska knattspyrnusambandsins af ráðningu landsliðsþjálfara og er hættur eftir aðeins rúmlega tveggja vikna starf. epa/ALESSANDRO DI MARCO Paolo Maldini og Leonardo hafa sagt störfum sínum fyrir ítalska knattspyrnusambandið lausum. Leit þess að nýjum landsliðsþjálfara hefur gengið illa og Maldini og Leonardo fengu nóg af afskiptum forseta ítalska sambandsins.
Aðeins sextán dagar eru síðan Maldini var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá ítalska knattspyrnusambandinu. Honum var ætlað að koma ítalska landsliðinu aftur á réttan kjöl, eftir að því mistókst að komast á þriðja heimsmeistaramótið í röð, og fyrsti liðurinn í því var að finna nýjan landsliðsþjálfara. Á ýmsu hefur gengið í þeirri leit. Ítalir reyndu við Carlo Ancelotti og Pep Guardiola en án árangurs. Andrea Pirlo var næstur á blaði en Maldini vildi fá sinn gamla samherja hjá AC Milan til að taka við landsliðinu. Ekkert varð af því en forseti ítalska knattspyrnusambandsins, Giovanni Malagó, vildi ekki ráða Pirlo vegna tengsla hans við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet. Pirlo hefur birst í auglýsingum fyrir fyrirtækið og komið fram á viðburðum sem fulltrúi þess. Stjórnmálasamband Ítalíu og Rússland er stirt eftir innrásina í Úkraínu 2022. Maldini og Leonardo, sem var ráðinn sem ráðgjafi hans, gátu ekki sætt sig við þessi afskipti Malagós og samkvæmt Sky á Ítalíu eru þeir hættir hjá ítalska knattspyrnusambandinu. Ítalir eru því ekki bara án landsliðsþjálfara heldur þarf einnig að ráða í stöðuna sem Maldini gegndi eftir að hann steig frá borði. Ítalíu mistókst að tryggja sér sæti á HM 2026 og í kjölfarið urðu miklar breytingar hjá ítalska knattspyrnusambandinu. Þá hætti Gennaro Gattuso sem þjálfari landsliðsins. Fjórfaldir heimsmeistarar Ítalíu hafa ekki leikið á HM síðan 2014. Tveir fyrrverandi þjálfarar ítalska landsliðsins, Roberto Mancini og Antonio Conte, þykja líklegastir til að taka aftur við því.
Ítalski boltinn Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira