Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar 3. ágúst 2026 08:01 Þann 26. júlí birti Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar og einn reyndasti strámannabyggingameistari ríkisstjórnarinnar, pistil á Facebook síðu sinni. Þar ásakaði hann Ingibjörgu Davíðsdóttir, þingmann Miðflokksins, um tvískinnung þess eðlis að hún, og Miðflokkurinn allur, tali fyrir fullveldi Íslands þegar kemur að mögulegri aðild að Evrópusambandinu en vilji á sama tíma að Ísland fari “á hnjánum til Trump til að fá leyfi til að taka ákvörðun um framtíð lands og þjóðar”. Þess má geta að Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, tók undir með Sigmari. Tilefnið er gagnrýni Ingibjargar á ríkisstjórn Íslands fyrir það að hafa enn ekki leitað upplýsinga frá ríkisstjórn Bandaríkjanna varðandi það hvaða afleiðingar möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa fyrir samband Íslands og Bandaríkjanna. Ísland er herlaus þjóð. Öryggi Íslands er tryggt af NATO, en kjarni þess er Bandaríkin. Það er almennt viðurkennt að NATO, án Bandaríkjanna, hafi ekki burði til að tryggja varnir aðildaríkja bandalagsins. Staðan er því sú í dag — hvað sem fólki kann að finnast um ágæti þess — að öryggi Íslands er háð vilja Bandaríkjanna til að vernda okkur. Ef Ísland gengi inn í Evrópusambandið væri Ísland skyldugt til þess að standa með Evrópusambandinu í einu og öllu þegar kemur að utanríkis- og öryggismálum og taka í því virkan þátt.[1] Því gæti komið upp sú staða, ef upp koma deilur á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, að Ísland væri búið að skuldbinda sig til að taka virkan þátt í aðgerðum gegn ríkinu sem tryggir öryggi Íslands. Við höfum þegar séð ýmsan ágreining á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna undanfarið — tollastríðið, deilur um stöðu mál- og skoðanafrelsis í Evrópu, gríðarlegar sektir Evrópusambandsins á Bandarísk fyrirtæki, o.s.frv. Það er því algjörlega óskiljanlegt af minni hálfu af hverju ríkisstjórnin hefur ekki gengið eftir þessum upplýsingum. Ég tel þetta alvarlegan áfellisdóm á getu Sigmars og ríkisstjórnar hans til að standa vörð um hagsmuni og öryggi Íslendinga. Sömuleiðis þykir mér það ekki sæma þingmanni að nýta sér rökstuddar áhyggjur annars þingmanns af öryggi Íslands til þess að skora pólitísk stig. Hér er allt undir. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] https://eur-lex.europa.eu/eli/treaty/teu_2012/art_24/oj/eng Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Þann 26. júlí birti Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar og einn reyndasti strámannabyggingameistari ríkisstjórnarinnar, pistil á Facebook síðu sinni. Þar ásakaði hann Ingibjörgu Davíðsdóttir, þingmann Miðflokksins, um tvískinnung þess eðlis að hún, og Miðflokkurinn allur, tali fyrir fullveldi Íslands þegar kemur að mögulegri aðild að Evrópusambandinu en vilji á sama tíma að Ísland fari “á hnjánum til Trump til að fá leyfi til að taka ákvörðun um framtíð lands og þjóðar”. Þess má geta að Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, tók undir með Sigmari. Tilefnið er gagnrýni Ingibjargar á ríkisstjórn Íslands fyrir það að hafa enn ekki leitað upplýsinga frá ríkisstjórn Bandaríkjanna varðandi það hvaða afleiðingar möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa fyrir samband Íslands og Bandaríkjanna. Ísland er herlaus þjóð. Öryggi Íslands er tryggt af NATO, en kjarni þess er Bandaríkin. Það er almennt viðurkennt að NATO, án Bandaríkjanna, hafi ekki burði til að tryggja varnir aðildaríkja bandalagsins. Staðan er því sú í dag — hvað sem fólki kann að finnast um ágæti þess — að öryggi Íslands er háð vilja Bandaríkjanna til að vernda okkur. Ef Ísland gengi inn í Evrópusambandið væri Ísland skyldugt til þess að standa með Evrópusambandinu í einu og öllu þegar kemur að utanríkis- og öryggismálum og taka í því virkan þátt.[1] Því gæti komið upp sú staða, ef upp koma deilur á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, að Ísland væri búið að skuldbinda sig til að taka virkan þátt í aðgerðum gegn ríkinu sem tryggir öryggi Íslands. Við höfum þegar séð ýmsan ágreining á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna undanfarið — tollastríðið, deilur um stöðu mál- og skoðanafrelsis í Evrópu, gríðarlegar sektir Evrópusambandsins á Bandarísk fyrirtæki, o.s.frv. Það er því algjörlega óskiljanlegt af minni hálfu af hverju ríkisstjórnin hefur ekki gengið eftir þessum upplýsingum. Ég tel þetta alvarlegan áfellisdóm á getu Sigmars og ríkisstjórnar hans til að standa vörð um hagsmuni og öryggi Íslendinga. Sömuleiðis þykir mér það ekki sæma þingmanni að nýta sér rökstuddar áhyggjur annars þingmanns af öryggi Íslands til þess að skora pólitísk stig. Hér er allt undir. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] https://eur-lex.europa.eu/eli/treaty/teu_2012/art_24/oj/eng
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar