Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júlí 2026 13:44 Sonur Ingunnar keppti á ReyCup. Samsett Sextán ára sonur Ingunnar Eirar Andrésdóttur fæddist litblindur en hefur verið tregur til að segja frá því. Skilningsleysi og hneykslun mættu honum á fótboltamótinu ReyCup. „
Sonur minn er 16 ára og tók þátt á knattspyrnumótinu Rey Cup um síðustu helgi. Hann er litblindur. Hann fæddist litblindur þar sem hann erfði gallað litsjónargen frá mér, móður sinni,“ skrifar Ingunn í skoðanagrein á Vísi. Sonur hennar sér því ekki mun á pastellitum og mörgum dökkum litum, til dæmis svörtum, rauðum, grænum, brúnum og bláum. Hins vegar sér hann hvítan og gulan vel. Hann hefur hins vegar ekki viljað minna á litblinduna, sér í lagi þegar hann spilar fótbolta. Ingunn vísar í handbók leikja sem gefin var út af KSÍ. Þar segir að dómari eigi að skoða búningana klukkustund fyrir leik og sérstaklega tekið fram að gæta þurfi þess að litirnir séu aðgreinanlegir með tilliti til litblindu. Á mótinu var notast við vesti sem voru gul eða hvít syninum til aðstoðar. „Á ReyCup skildi ég hins vegar hvers vegna sonur minn hefur síður viljað minna á litblinduna og notkun vesta. Ég varð vitni að skilningsleysi, hneykslun og athugasemdum frá sumum áhorfendum þegar vesti voru notuð,“ skrifar Ingunn. „Sumir veltu því jafnvel fyrir sér hvort þetta væri uppspuni eða leið til að skapa forskot í leiknum.“ Neituðu að spila í vestunum Í samtali við fréttastofu segist Ingunn hafa skrifað greinina sem eins konar vitundarvakningu. Þegar hún sat í stúkunni hafi hún heyrt í öðrum foreldrum sem furðuðu sig á vestanotkuninni í leiknum. Sjálf finnur hún fyrir miklum skilningi meðal liðsfélaga sonar síns. „Ég hef farið á leiki þar sem hann hefur ítrekað sent boltann á mótherja því hann gat ekki greint á milli búninganna. Eftir einn slíkan leik ræddum við málið við þjálfarann sem hefur sýnt þessu mikinn skilning og verið duglegur að tryggja að vesti séu notuð þegar þess þarf.“ Ingunn lét þessa mynd fylgja með greininni til útskýringar.UEFA Sömu sögu er ekki að segja um mótherjana. „Þeir létu í rauninni eins og þetta væri ekki satt, sumir voru pirraðir,“ segir hún. Í einum leik voru mótherjarnir látnir spila í sérstökum vestum en þegar spila átti aftur við liðið neituðu þeir að vera í vestunum. Ingunn segir að þeim hafi mætt skilningsleysi og dónaskapur, foreldrar hafi verið hneykslaðir og jafnvel ranghvolft augunum. Einn af hverjum tólf litblindur Einn af hverjum tólf karlmönnum er litblindur og ein af hverjum tvö hundruð konum. „Það er því tölfræðilega líklegt að í hverju karlaliði sé að minnsta kosti einn litblindur leikmaður. KSÍ hóf mikilvægt verkefni árið 2020 til að vekja athygli á litblindu í fótbolta. Markmið verkefnisins var að öll knattspyrnuhreyfingin og þeir sem að henni koma yrðu meðvitaðir um litblindu og þær áskoranir sem litblindir leikmenn geta staðið frammi fyrir,“ segir Ingunn. Átakið um litblindu í fótbolta var í birtingu á miðlum KSÍ í nokkur ár að sögn samskiptafulltrúa KSÍ og var það hluti af verkefni sem sambandið setti af stað árið 2020. Tilgangur þess var að vekja athygli á stöðu litblindra í fótbolta og áhersla lögð á að litblinda snerti ekki aðeins leikmenn heldur einnig þjálfara, dómara, áhorfendur og aðra sem koma að leiknum. Vitundarvakningin hafi sér í lagi skilað sér til leikmanna í efstu deildum en til að mynda eiga liðin Breiðablik og Valur ekki að spila hvort á móti öðru í aðalbúningum þar sem græn-rauð litblinda er afar algeng. Ingunn kallar eftir enn frekari vitundarvakningu. „Reynsla mín af Rey Cup bendir þó til þess að enn sé þörf á frekari vitundarvakningu um litblindu í fótbolta. Ég vildi því vekja athygli á sýn sonar míns og hvetja til þess að við mætum litblindum leikmönnum af skilningi, umburðarlyndi og virðingu.“
Fótbolti ReyCup KSÍ Íþróttir barna Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira