ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 29. júlí 2026 13:02 Ég hef fylgst vel með umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og það má greina ágætlega hvernig fólk skiptist í fylkingar — og ekki síður hvað liggur að baki afstöðu þess. Sért þú: ☐ fjármagnseigandi sem vill verja stöðu sína,☐ uppfullur af misskilinni ættjarðarást og telur Ísland öðrum löndum fremra,☐ atvinnurekandi sem nýtur góðs af fákeppni og vilt halda henni,☐ aðdáandi Donalds Trump,☐ meðal þeirra sem hagnast á háum vöxtum, verðtryggingu eða hækkandi eignaverði,☐ tortrygginn í garð útlendinga,☐ í forsvari fyrir verkalýðsfélag og telur hærri krónutölu á launaseðli umbjóðenda þinna meira virði en kaupmáttinn sem gengisfelling étur síðan upp,☐ lítið eða ekkert skuldugur og finnur því síður fyrir vaxtabyrði íslensku krónunnar,☐ sannfærður um að hamfarahlýnun sé lygi og þú hafir sjálfur áttað þig á sannleikanum,☐ svo heppinn að þurfa ekki að hafa áhyggjur af stöðu barna þinna á einum dýrasta húsnæðismarkaði Evrópu,☐ illa við hinsegin fólk,☐ öfgavinstrimaður sem hefur aldrei alveg komist út úr kaldastríðspólitík síðustu aldar,☐ ginkeyptur fyrir áróðri sem gengur þvert gegn staðreyndum og sannleikanum,☐ greinandi eða hagfræðingur sem fær greitt fyrir að flytja málflutning gegn ESB sem stenst illa skoðun — en gætir sjálfur samt alveg kosið já, þá ertu í réttum félagsskap meðal nei-sinna. Einn eða tveir reitir duga. Ef þú hakar við fleiri gæti hins vegar verið ástæða til að hafa smá áhyggjur. Það er stundum sagt að af vinum þínum megi þig þekkja. Í þessu tilviki mætti kannski orða það aðeins öðruvísi: Af skoðanabræðrum þínum má þig þekkja. Höfundur er stafrænn hönnuður sem segir já til að sjá — og vill síðan fá að taka upplýsta ákvörðun um það sem raunverulega verður samið um. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Ég hef fylgst vel með umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og það má greina ágætlega hvernig fólk skiptist í fylkingar — og ekki síður hvað liggur að baki afstöðu þess. Sért þú: ☐ fjármagnseigandi sem vill verja stöðu sína,☐ uppfullur af misskilinni ættjarðarást og telur Ísland öðrum löndum fremra,☐ atvinnurekandi sem nýtur góðs af fákeppni og vilt halda henni,☐ aðdáandi Donalds Trump,☐ meðal þeirra sem hagnast á háum vöxtum, verðtryggingu eða hækkandi eignaverði,☐ tortrygginn í garð útlendinga,☐ í forsvari fyrir verkalýðsfélag og telur hærri krónutölu á launaseðli umbjóðenda þinna meira virði en kaupmáttinn sem gengisfelling étur síðan upp,☐ lítið eða ekkert skuldugur og finnur því síður fyrir vaxtabyrði íslensku krónunnar,☐ sannfærður um að hamfarahlýnun sé lygi og þú hafir sjálfur áttað þig á sannleikanum,☐ svo heppinn að þurfa ekki að hafa áhyggjur af stöðu barna þinna á einum dýrasta húsnæðismarkaði Evrópu,☐ illa við hinsegin fólk,☐ öfgavinstrimaður sem hefur aldrei alveg komist út úr kaldastríðspólitík síðustu aldar,☐ ginkeyptur fyrir áróðri sem gengur þvert gegn staðreyndum og sannleikanum,☐ greinandi eða hagfræðingur sem fær greitt fyrir að flytja málflutning gegn ESB sem stenst illa skoðun — en gætir sjálfur samt alveg kosið já, þá ertu í réttum félagsskap meðal nei-sinna. Einn eða tveir reitir duga. Ef þú hakar við fleiri gæti hins vegar verið ástæða til að hafa smá áhyggjur. Það er stundum sagt að af vinum þínum megi þig þekkja. Í þessu tilviki mætti kannski orða það aðeins öðruvísi: Af skoðanabræðrum þínum má þig þekkja. Höfundur er stafrænn hönnuður sem segir já til að sjá — og vill síðan fá að taka upplýsta ákvörðun um það sem raunverulega verður samið um.
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar