Innlent

Slapp með minniháttaráverka eftir að bíll hans valt 2-300 metra niður Bolafjall

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Bolafjalli
Frá Bolafjalli Vilhelm

Bílstjóri slapp með minniháttaráverka eftir að bifreið hans valt tvö til þrjú hundruð metra niður Bolafjall við Bolungarvík. 

Atvikið átti sér stað nú á þriðja tímanum að sögn Hlyns Snorrasonar, yfirlögregluþjóns á Ísafirði. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna tilkynningarinnar.

Tveir lögreglubílar, tveir sjúkrabílar og björgunarsveit fóru á vettvang en þegar þangað var komið reyndist bílstjórinn með minniháttar áverka og því fór betur en áhorfðist. 

Bílstjórinn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. 

Bíllinn er sagður gjörónýtur en tildrög slyssins liggja ekki fyrir að svo stöddu. 

Bolafjall rís 638 metra yfir Bolungarvík og vegurinn þangað upp er brattur og að mestu malarvegur. Hann var upphaflega lagður vegna ratsjárstöðvarinnar á fjallinu en er opinn almenningi yfir sumarið. Umferð um veginn hefur aukist mikið eftir að útsýnispallur var opnaður á fjallinu árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×