Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Andri Broddason skrifar 30. júlí 2026 07:00 Valur Páll ræddi áform FIFA, viðbrögð UEFA og hvaða þýðingu þessar mögulegu breytingar gætu haft í för með sér í fréttum Sýnar. Vísir/Getty Gianni Infantino, forseti Fifa, hefur áformað að hleypa utanaðkomandi fjárfestum inn í sambandið og hefur það farið öfugt ofan í hlutaðeigandi. Knattspyrnusamband Evrópu hefur gagnrýnt áformin harðlega og hefur boðað formenn sambanda í álfunni á neyðarfund.
Fifa hefur opinberað áætlanir um að utanaðkomandi fjárfestar geti keypt hluti af eignum sambandsins og haft af því tekjur. Samkvæmt Financial Times mun Joshua Kushner leiða fjárfestingarhópinn en hann er bróðir tengdasonar Donalds Trump. Infantino sjálfur mun hagnast af þessum áætlunum en einnig eru sambandsríkjum Fifa lofaðir fimm milljarðar króna fyrir að kjósa með verkefninu. Einnig hefur sambandið ógnað að draga til baka fjárlög sem fara nú þegar til sambandsríkja ef kosið er gegn verkefninu. UEFA gagnrýnir þessa ákvörðun harðlega og hefur boðað til neyðarfundar. UEFA leggur áherslu á að fótbolti sé ekki til sölu. „Íþróttasambönd eru lokuð kerfi sem gerir það að verkum að pólitísk áhrif eiga ekki að vera til staðar. Samböndin eiga að vinna fyrir hag íþróttarinnar og iðkenda. Með þessu er fótbolti að missa sjálfræði sitt og leyfa öðrum að græða á því.“ Við ákvörðun Infantino væri peningur sem myndi skila sér í fótboltann fara frekar í vasa hans og annarra hluthafa. Knattspyrnusambönd hafa oft verið styrkt af einkafyrirtækjum en þau hafa aldrei setið stjórnarfundi. „Þarna eru aðilar með önnur markmið og önnur gildi. Eina markmið þeirra er að hámarka eigin gróða í staðinn fyrir að það sé verið að vinna fyrir almannaheillum sem fótboltinn er.“ Óvíst er hvaða áhrif þetta hefur á hinar ýmsu knattspyrnukeppnir í heiminum og hræðir óvissan marga. Aðildarsamböndum var boðin há upphæð fyrir að svara játandi en þeim var sömuleiðis hótað að skerða fjárlög ef kosið er á móti. „KSÍ fær um 80 prósent af tekjum sínum frá Fifa og Uefa sem gerir það erfitt að hafna svona boði. En það er ekki lýðræðislegt að borga fyrir atkvæði og hóta viðurlögum fyrir að kjósa ekki með.“ Í grunninn er málið einfalt fyrir sambönd innan Fifa: „Nú þurfa knattspyrnusambönd á borð við KSÍ að hugsa sig um og ákveða hvort að samþykkja eigi boð Infanti,no sem dregur úr gildum knattspyrnunnar, eða standa gegn þessum hótunum við fótboltaheiminn.“ Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Sjá meira