Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar 30. júlí 2026 07:00 Viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið The Rest Is Politics hefur vakið mikla athygli og ekki að ástæðulausu. Að mínu mati var þar í fyrsta sinn dregið fram með fullum skýrleika hvað ríkisstjórnin er í raun að biðja kjósendur um að taka afstöðu til. Forsætisráðherra sagði að markmið sitt væri að fá já. Hún sagði jafnframt að með já-atkvæði fengi ríkisstjórnin umboð til að hefja aðildarviðræður að nýju, ljúka þeim og leggja síðan hugsanlegan aðildarsamning fyrir þjóðina. Þetta kom mér síður en svo á óvart. Það sem mér fannst mikilvægast við viðtalið var ekki niðurstaðan heldur skýrleikinn. Ég hef áður haldið því fram að aðildarviðræður séu ekki hlutlaus upplýsingaleit heldur formlegt aðildarferli samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Í viðtalinu lýsti forsætisráðherra því sjálf þannig að spurt yrði: „Viljið þið að við opnum viðræður á ný, ljúkum samningaviðræðunum og þegar samningur liggur fyrir verði haldin önnur þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þjóðin segir annaðhvort já eða nei?“ Þess vegna hefur mér fundist villandi þegar umræðan hefur verið sett fram eins og þjóðin sé aðeins að kjósa um að „kíkja í pakkann“ eða segja „já til að sjá“. Það er engin mótsögn í því að segja að þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst sé ekki endanleg ákvörðun um aðild og að hún skipti engu að síður miklu máli. Ég hef aldrei haldið því fram að já í ágúst jafngildi aðild að Evrópusambandinu. En þjóðin er að taka afstöðu til þess hvort hún vilji veita ríkisstjórninni umboð til að hefja að nýju formlegt aðildarferli. Það er allt önnur spurning en hvort afla eigi frekari upplýsinga. Viðtalið staðfestir þetta að mínu mati. Forsætisráðherra segir skýrt að hún vilji fá já, að hún vilji hefja viðræður að nýju og ljúka þeim. Þegar hún var spurð út í markmið sín svaraði hún einfaldlega: „Markmiðið er auðvitað að fá já. Það er augljóslega markmiðið.“ Um leið leggur hún áherslu á að þjóðin muni síðar fá að kjósa um endanlegan samning og að hún sjálf hafi ákveðin rauð strik í viðræðunum. Ég dreg það ekki í efa og tel raunar mikilvægt að hún orði það með þessum hætti. Það auðveldar okkur loksins að ræða hinn raunverulega ágreining í málinu í stað þess að deila um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snýst yfirhöfuð um. Í viðtalinu sagði forsætisráðherra einnig eitthvað sem ég held að flestir geti tekið undir. Hún sagði að stjórnmálamenn ættu að sýna fólki virðingu, hlusta á það og ekki tala niður til þess. Þar er ég henni sammála. En virðing felst ekki aðeins í kurteisi. Hún felst líka í hreinskilni. Ef ríkisstjórnin telur að aðild að Evrópusambandinu sé þjóðinni fyrir bestu á hún einfaldlega að segja það. Ef hún óskar eftir umboði til að hefja að nýju aðildarviðræður á hún líka að segja skýrt hvað slíkt umboð felur í sér. Þá geta kjósendur tekið upplýsta afstöðu til þeirrar spurningar sem raunverulega liggur fyrir. Ég hef aldrei verið andvígur því að fólk kynni sér Evrópusambandið eða ræddi kosti og galla aðildar. Þvert á móti tel ég að slík umræða sé nauðsynleg. En ég tel að nægar upplýsingar liggi þegar fyrir um eðli aðildarferlisins og þær skuldbindingar sem aðild að Evrópusambandinu myndi fela í sér. Afstaða mín byggist því ekki á því að ég vilji ekki frekari upplýsingar heldur á því að ég vil ekki að Ísland hefji að nýju formlegt aðildarferli. Ég hef líka áður bent á að ákvörðunin um að hefja aðildarviðræður er ekki hlutlaus í pólitískum skilningi. Ef þjóðin segir já verður ráðist í margra ára ferli sem krefst mikillar vinnu, verulegra fjárútláta og mikils pólitísks fjármagns. Það eitt getur haft áhrif á umræðuna þegar síðar verður kosið um endanlegan samning. Ekki vegna þess að þjóðin missi frelsi sitt til að segja nei heldur vegna þess að þegar margra ára aðildarferli er komið af stað verður umræðan ekki lengur sú sama. Þá verður búið að verja miklum tíma og fjármunum í verkefnið og eðlilegt að ákveðinn þrýstingur skapist um að ljúka því. Þess vegna tel ég að fyrsta ákvörðunin hafi sjálfstæða pólitíska og stjórnskipulega þýðingu. Hún er ekki aðeins saklaust milliskref á leið að annarri atkvæðagreiðslu. Forsætisráðherra hefur fullan rétt til að hvetja þjóðina til að segja já. Ég ber virðingu fyrir þeirri afstöðu þótt ég sé henni ósammála. Ég tel hins vegar að þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snúist um hvort veita eigi ríkisstjórninni umboð til að hefja að nýju formlegt aðildarferli samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Sjálf lýsti forsætisráðherra því þannig að þjóðin yrði spurð hvort hún vildi að viðræður yrðu opnaðar á ný, þeim lokið og samningur síðan lagður í þjóðaratkvæði. Það er þeirri spurningu sem ég svara með nei. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Gunnar Ármannsson Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar