Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 10:20 „Ég vil taka það skýrt fram: Ég kom hvergi nærri þessari tillögu og er henni eindregið andvígur,“ segir yfirráðgjafi FIFA. Alexander Hassenstein - FIFA/FIFA via Getty Images Carlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar.
Cordeiro greinir frá þessu í yfirlýsingu til Sky Sports, sem segir um mikið högg að ræða fyrir Infantino og vonir hans um að halda sér í hásæti fótboltans. Tíðindin berast ofan í tilkynningar um mótmæli hjá knattspyrnusamböndum Evrópu, Ameríku og Asíu. Sjá einnig: UEFA hótar sniðgöngu, CONCACAF mótmælir og AFC tekur undir. Cordeiro hefur mikið vægi innan fótboltans og innan FIFA. Hann er fyrrum forseti bandaríska knattspyrnusambandsins og starfaði áður í framkvæmdastjórn Goldman Sachs bankans. „Sem yfirráðgjafi forseta FIFA, fyrrverandi bankamaður og fótboltaáhugamaður frá blautu barnsbeini get ég ekki horft aðgerðalaus á meðan FIFA íhugar að selja hlut í heimsmeistaramótinu. Ég vil taka það skýrt fram: Ég kom hvergi nærri þessari tillögu og er henni eindregið andvígur. Þetta er slæmur samningur fyrir aðildarfélög FIFA, slæmur samningur fyrir fótboltann og slæmur samningur fyrir framtíð íþróttarinnar til lengri tíma litið,“ segir Cordeiro í yfirlýsingu sinni til Sky Sports. Carlos Cordeiro, þáverandi forseti bandaríska knattspyrnusambandsins, ásamt Gianni Infantino forseta FIFA og Donald Trump Bandaríkjaforseta árið 2018. EPA/MICHAEL REYNOLDS „FIFA hefur nú þegar aðgang að gríðarlegum fjármunum. Samtökin eiga milljarða dollara í varasjóðum og eru skuldlaus. Forseti FIFA hefur sjálfur bent á 15 milljarða dollara tekjur sem mynduðust á árunum 2022 til 2026. Ef aðildarsambönd telja að frekari fjárfestingar séu nauðsynlegar til að þróa íþróttina, hefur FIFA nú þegar fjárhagslega burði til að veita þann stuðning úr núverandi sjóðum. Í því ljósi er lítill tilgangur með því að selja varanlegan hlut í verðmætustu eign fótboltans. Það heitir að veðsetja framtíð fótboltans án nokkurra sannfærandi raka. Slíkur efnahagslegur árangur var engin tilviljun. Honum var náð af reyndu fagfólki í fótbolta sem sló öll sölumet FIFA. En þrátt fyrir þennan árangur er nú farið fram á að utanaðkomandi fjárfestar séu nauðsynlegir til að skapa meiri verðmæti. Ég sætti mig ekki við þá tillögu. Fólkið sem byggði upp þennan árangur hefur þegar sýnt fram á að FIFA býr yfir sérfræðiþekkingu til að halda áfram að efla bæði íþróttina og viðskiptalega framtíð hennar. Áhyggjuefnið er þó fyrst og fremst skortur á svörum við grundvallarspurningum. Hvers vegna þessi samningur? Hvers vegna núna? Hvaða eftirlit er til staðar? Hver hagnast? Fór fram samkeppnisferli? Hvaða stjórnarhættir verða við lýði? Hvað munu fjárfestar á endanum græða og á hvaða kostnað fyrir fótboltann? Þessum spurningum er að mestu ósvarað, en samt er farið fram á að aðildarsambönd taki ákvörðun með gríðarlegum afleiðingum á innan við 50 dögum, ella eigi þau á hættu að verða skilin eftir. Það er ekki ábyrg leið til að ráða framtíð vinsælustu íþróttar heims. Þessi tillaga er orðin úrslitaatriði fyrir framtíð FIFA. Eftir vandlega íhugun get ég ekki lengur gegnt starfi mínu sem aðalráðgjafi forseta FIFA. Ég hef því sagt starfi mínu lausu með tafarlausri verkun. Ábyrgð FIFA er ekki að hámarka viðskiptalegan ávinning hvað sem það kostar. Hún er að vernda og styrkja fótboltann fyrir komandi kynslóðir. Þegar þessar meginreglur stangast á verður fótboltinn að ganga fyrir. Það hafa verið forréttindi ævi minnar að þjóna FIFA í meira en fimm ár og vinna með einlægu og grandvöru fólki sem ber djúpa umhyggju fyrir íþróttinni. Ég vona að það láti líka í sér heyra, því ákvarðanir af þessari stærðargráðu eiga að vera teknar í þágu fótboltans, ekki þeirra sem hagnast á honum,“ skrifar Cordeiro til Sky Sports.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Lille - Galatasaray | Hákon og félagar fá Tyrki í heimsókn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Sjá meira