Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sigurgeir Þorkelsson skrifar 31. júlí 2026 13:50 Martin Michael, athafnamaðurinn þýski sem hyggst endurreisa Niceair, er hér til vinstri. Samsett Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Niceair kemur fram að starfsemi á Íslandi hefjist í fyrsta lagi vorið 2027. Sagt er að flug þess á meginlandinu hefjist nú í nóvember en ekki er upplýst milli hvaða staða verður flogið.
Sagt er að ákvörðunin sé tekin í ljósi ástandsins í heimsmálunum og hás eldsneytisverðs. Þá hafi gengið erfiðlega fyrir félagið að afla sér samstarfsaðila sem fæstir séu tilbúnir til langtímaskuldbindinga í yfirstandandi óvissu. Félagið staðfestir að komið verði á flugi milli Akureyrar og meginlands Evrópu, Akureyringar „eigi skilið sterkar og áreiðanlegar flugsamgöngur“. Slíkt muni þó ekki verða fyrr en markaðsaðstæður séu réttar. Tekið er fram að eftirspurn sé þó enn sterk á Evrópumarkaði og til skemmri tíma horfi félagið til meginlandsins. „Eins og áður hefur verið sagt frá vill fyrirtækið heldur einblína nú í vetur á að stækka leiðakerfið þvert yfir Evrópu,“ segir í tilkynningunni en félagið áætlar að hefja starfsemi þar í nóvember. Ekki er tilgreint nákvæmlega um hvaða flugleiðir ræðir. Á heimasíðu félagsins er aðeins talað um flugleiðina milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Fullyrt er að á öðrum mörkuðum njóti Niceair mikils stuðnings bæði flugvalla, þjónustuaðila fyrirtækisins og yfirvalda á svæðinu sem leyfi því að vaxa á sjálfbæran hátt. Síðast þegar Vísir sagði frá flugfélaginu í byrjun árs hafði jómfrúarflugi þess milli Akureyrar og Kaupmannahafnar verið aflýst. Það var síðan í fyrra sem við sögðum frá því að þýskur athafnamaður hygðist endurreisa fyrirtækið. Hið upprunalega Niceair hóf flug árið 2022 en varð gjaldþrota árið eftir.
Niceair Flug Akureyri Akureyrarflugvöllur Ferðalög Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Sjá meira